Hoppa í efni

Sögulegur dagur fyrir jafnræði lífsskoðana á Íslandi

Svanur Sigurbjörnsson | 03.05.2013

Í dag tók Hope Knútsson formaður Siðmenntar við staðfestingu úr hendi Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, á því að félagið væri formlega lögskráð hjá ríkinu sem lífsskoðunarfélag.

Stjórn félagsins og stuðningsmenn þess hafa barist fyrir jafnræði lífsskoðunarfélaga í rúm 13 ár og nú var loksins upp skorið.  Sjá má nánari umfjöllun á Siðmennt.is

Fyrir mig og 10 aðra athafnarstjóra hjá Siðmennt þýðir þetta að við erum viðurkenndir sem lögformlegir

Bjarni Jónsson, Hope Knútsson, Ögmundur Jónasson og Ragnhildur Hjaltadóttir

hjónavígslumenn og hjónaefni þurfa ekki lengur að fara fyrst í athöfn hjá sýslumanni áður en það heldur hátíðlega athöfn með athafnarstjóra.  Eftir um 1-2 vikur má vænta þess að þetta verði frágengið.

Ég spái því að þetta muni auka vinsældir athafna Siðmenntar til muna og það er spennandi áskorun að takast á við það verkefni að anna aukinni eftirspurn næstu missera.  Við hlökkum til giftingarathafna sumarsins.

Þessi viðurkenning á því sem Siðmennt er og stendur fyrir, er ekki síður ákveðið skref úr myrkviðum miðalda.  Þetta er áframhald á Upplýsingarstefnunni og merki þess að menning fólks án trúarlegra skoðana er að öðlast fastari og sterkari sess í þjóðfélaginu.  Svipuð þróun á sér stað í öðrum ríkjum Evrópu og Norður-Ameríku.

Ég óska stjórn Siðmenntar og öllum félagsmönnum og velunnurum félagsins til hamingju með þennan merka áfanga!

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sigurdur Holm Gunnarsson 3. maí 2013 · á Facebook

    Nánari umfjöllun um Siðmennt sem lífsskoðunarfélag á skodun.is
    http://skodun.is/.../vidtal-stefna-sidmenntar-i-kjolfar.../
    http://skodun.is/.../veraldleg-lifsskodunarfelog-loksins.../

  2. Sigurdur Holm Gunnarsson 3. maí 2013 · á Facebook

    Þetta eru frábær tíðindi.

  3. Viðar Freyr Guðmundsson 3. maí 2013 · á Facebook

    Til hamingju! Fyrst að ríkið þarf að skipta sér af þessum hlutum í fyrsta lagi, þá er nú skárra að allir sitji við sama borð og að félag eins og Siðmennt, sem er ekki síður merkilegt heldur en þjóðkirkjan fái notið sömu réttinda.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Svanur Sigurbjörnsson

Allar greinar höfundar (17) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.