Hoppa í efni

Skipholtsapótek selur snákaolíu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.01.2008

Skipholtsapótek auglýsir nú reglulega að það selji öll hómópatíulyf í sínum verslunum. Það hlýtur að teljast siðlaust þegar apótek ákveða að græða á „meðferð“ sem vitað er að er algerlega gagnslaus. Ég er afskaplega hræddur um að stór hluti viðskiptavina apóteka geri ráð fyrir því að „lyf“ sem seld eru í apótekum hafi raunverulega verkun. Að sama skapi er ég nánast alveg viss um að starfsmenn apótekanna láti viðskiptavini sína ekki vita af því hómópatíulyf séu gagnslaus.

Þegar snákaolía er seld í apótekum er verið að blekkja veikt fólk vísvitandi. Eigendur þessara apóteka ættu því að skammast sín.

Sjá nánar:
Homeopathy: The Ultimate Fake

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ólöf Þráinsdóttir 10. janúar 2009

    Mér finnst þetta sorgleg þröngsýni hjá þér sem ég verð því miður oft vör við hjá þeim fagstéttum sem hefur fengið viðurkenningu í heilbrigðiskerfinu. Reyndar held ég að hómópatar sé eins misjafnir og þeir eru margir en það eru líka misjafnir sauðir í þeim fagstéttum sem hafa hlotið viðurkenningu. Ég þekki marga sem hafa nýtt sér græðara af ýmsu tagi þegar allt virðist fullreynt hjá þeim fagaðilum sem hafa hlotið náð kerfisins og margir fengið bót meina sinna. Með ósk um að þér hlotnist meiri víðsýni.

  2. Guðmundur 28. júlí 2009

    Mér finnst nú öllu alvarlegra að apótek skuli selja sælgæti, sem er skaðlegra en flest hómópatalyf

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.