Hoppa í efni

Ótti við íslamisma er ótti við bókstafstrú

Sigurður Hólm Gunnarsson | 13.01.2008

Egill Helgason uppljóstraði enn aftur um ótta sinn gagnvart Íslam í Silfrinu í dag. Til umfjöllunar var bókin „Íslam með afslætti“ þar sem reynt er að skoða Íslam út frá öðrum sjónarhól en oftast er gert í fjölmiðlum. Í spjalli sínu við Viðar Þorsteinsson og Magnús Þorkel Bernharðsson kom ótti Egils skýrt fram. Eins og svo margir þá óttast Egill Íslam þegar hann ætti í raun að óttast bókstafstrú almennt. Viðar sýndi ágætlega fram á þetta í viðtalinu.

Íslam eða bókstafstrú
Ég fullyrði að heiminum stendur ekki ógn af Íslam sérstaklega heldur af öfgum í trúarbrögðum almennt. Sértaklega af öfgum þeirra sem trúa á bókina. Það er að segja af bókstafstrúuðum kristintrúarmönnum, gyðingum og múslimum. Í sögulegu samhengi eru múslimar ekki öfgafyllri en t.d. kristintrúarmenn (sjá: Trúarbrögð og siðmenning) og erfitt er að fullyrða að heiminum standi meiri hætta í dag af bókstafstrúuðum múslimum en bókstafstrúuðum kristintrúarmönnum. Gleymum því ekki að sumir þeirra sem stefna að því að verða forsetar í voldugasta ríkis heims vilja láta banna samkynhneigð og telja árásarstríð réttlætanleg og jafnvel æskileg.

Það er rétt að til eru margir múslimar sem segjast styðja hryðjuverk. Þeir eru margir sem líta niður á konur og samkynhneigða og vilja afnema ýmis mannréttindi. Gegn þessum hugmyndum verður vitaskuld að berjast. Vandinn er hins vegar sá að fjölmargir kristintrúarmenn aðhyllast nákvæmlega sömu hugmyndafræði. Þeir kalla sig bara ekki hryðjuverkamenn heldur baráttumenn fyrir „frelsi, lýðræði og fjölskyldugildum“. Þessi tegund kristintrúarmanna er líka til hér á Íslandi (Sjá: Hvað ef Gunnar væri ráðherra?)

Bókstafstrú er einfaldlega stórhættuleg og það verður að berjast gegn henni. Sú barátta verður þó að fara fram með skynsamlegri umræðu en ekki skopteikningum og móðgunum.

Múslimar eru ekki einsleitur hópur frekar en kristintrúarmenn og því er óþolandi þegar þeir eru sífellt settir í sama hóp í fjölmiðlum. Slík hópaskipting veldur auk þess því að umræðan fer að snúast um „okkur“ og „hina“ en ekki kjarna málsins.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Hildur 13. janúar 2008

    Sammála. Og ef maður er á móti uppgangi bókstafstrúar þarf maður að vera á varðbergi gagnvart henni alls staðar, líka af hendi kristninnar.

  2. Armin von Lauß 18. janúar 2008

    halló, halló! hvad er ad? hvernig lidur tér? tó ég er bara litli austurríkismadur, ég skrifa samt, af tví ég meina tad... ääh, ähh.. well, i think i´m running out of icelandic:)

    hope u guys up there have a fabulous time. sorry, that i mess this website up a little bit with my unqualified comments!:)

    ást til ykkur bebe;)

    armin, vienna

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.