Hoppa í efni

Samtryggðar tennur takk

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.01.2013

Ung stúlka fellur í yfirlið, dettur og brýtur tennur. Er með sérstaka tryggingu frá tryggingafélagi en þarf samt að borga um milljón fyrir tannviðgerðir. Tryggingafélagið sleppur við að borga þar sem það leið víst yfir stúlkuna af því hún var veik en ekki af því hún lenti í slysi. Þvílíkt og annað eins rugl. Það á enginn að þurfa að vera sérstaklega tryggður fyrir því óláni að detta og brjóta tennur. Algerlega óháð því hvort viðkomandi er veikur eða lendir í slysi.

Eins og ég fjallaði um í pistli um daginn tel ég að læknisfræðilega sé enginn munur á brotnum tönnum og brotnum beinum. Almannatryggingar eiga að greiða kostnaðinn. Íþróttamaður sem lendir í „samstuði“ á æfingu og brýtur fót fær því sem næst ókeypis læknisþjónustu. Maður sem hrasar á dansgólfinu, á fimmta bjór, og brýtur rófubein fær einnig samstundis aðstoð.

Eftir stendur að ef þú dettur í hálkunni og brýtur bein þá ertu samtryggður. Færð fína, næstum fría, þjónustu frá opinberu heilbrigðiskerfi.  Þú gætir þó þurft að bíða í nokkra tíma á biðstofunni þar til að læknir getur sinnt þér. Á biðstofunni er fínn sjálfsali sem selur reyndar aðallega nammi. Ef þú ákveður að fá þér að borða á meðan þú bíður skaltu fara varlega. Passaðu þig sérstaklega á því að borða ekkert hart.  Því ef þú verður fyrir því óláni að brjóta tönn þá gætir þú þurft að selja bílinn þinn og taka lán fyrir viðgerðinni.

Sjá nánar:
Brotin bein og brotnar tennur

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Benedikt Halldórsson 21. janúar 2013 · á Facebook

    Góð ábending. Bein og tennur í sama flokk, já. En ókeypis tannlækningar fyrir börn hafa ekki orðið að veruleika vegna kostnaðar. Hægri menn eru svo að segja allir hlynntir ókeypis heilbrigðisþjónustu en það er forgangsraðað.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.