„Staðreyndin er bara sú að við erum ein stór fjölskylda sem eyðir of miklu. Eins og ríkisreikningurinn sýnir þurfum við að gera betur.“ Þetta segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins
Að bera ríkisrekstur saman við heimilisrekstur er vægast sagt vafasamt. Það vitlausasta sem hægt er að gera er að draga verulega úr umsvifum hins opinbera á meðan kaupmáttur almennings er lítill og hætta á auknu atvinnuleysi. Niðurskurður og aðhald í ríkisfjármálum á krepputíma getur hæglega dýpkað kreppuna. Sú er reynsla þjóða víðs vegar um heim.
Í samfélagi þar sem almenningur heldur að sér höndum vegna skulda og lækkandi kaupmáttar er beinlínis hættulegt að ríkið dragi á sama tíma verulega úr umsvifum sínum og fækki opinberu starfsfólki. Þannig stöðvast hjól atvinnulífsins. Þegar almenningur getur ekki keypt vöru og þjónustu og ríkið vill það ekki.
Nú er ég alls ekki á móti því að fólk sé gagnrýnið á opinberan rekstur. Það má auðvitað víðs vegar spara. Ég óttast þó niðurskurð í nafni hugmyndafræði. Ljóst er að samkvæmt frjálshyggjunni er ríkisrekstur vondur, ef ekki ofbeldi, og því eru öll rök nýtt til að skera niður hjá hinu opinbera og fækka störfum. Þar á meðal þau vafasömu rök að ríkið sé eins og „stór fjölskylda sem eyðir of miklu.“
Það er eitt af mikilvægari hlutverkum stjórnvalda að koma í veg fyrir atvinnuleysi, halda uppi kaupmætti og reyna að hindra frekara hrun í efnahagslífinu á krepputímum. Þess vegna þarf hið opinbera stundum að verja meiri fjármunum, ekki minni, í efnahagslægð.
Sjálfsagt er svo að skera niður og draga úr umsvifum hins opinbera þegar næsta „efnahagsundur“ fer af stað.
Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
Þetta er ein allsherjar steypa. Krafan um niðurskurð í ríkisrekstri byggist á þeirri staðreynd að stór hluti ríkisútgjalda er sóun. Að halda því fram að það að sóa sé réttlætanlegt af því að nú sé kreppa er meiriháttar hugsanavilla. Sem dæmi mætti nefna að 25M á ári í vexti af skuldaforða (sem kallaður er gjaldeyrisforði) stenst enga skoðun enda aldrei hægt að verja gengi gjaldmiðils með lánsfé. Tilgangslaus rekstur á alls kyns stofum, setrum, nefndum og stofnunum auk útblásins menntakerfis er einfaldlega feluleikur með atvinnuleysi. Ekker dæmi er til í seinni tíma hagsögu um að hallarekstur ríkis og minnkandi atvinnleysi fari saman, í raun er fylgnin öfug. Að gera öðrum upp skoðanir er alltaf vafasamt. Frjálshyggjumenn hafa aldrei sagt að ,,ríkisrekstur sé vondur" einungis að vondur rekstur eigi ekki að vera stundaður af ríki. Frjálshyggjumenn leggja að sjálfsögðu mikið upp úr grunnrekstri ríkisins sem einkaaðilar geta ekki séð um eins og dómsvald, landvarnir og löggjafarvald.…
Reyndar má alveg bera þetta saman, en á allt öðrum forsendum, og þá fæst allt önnur niðurstaða. Það væri einmitt alltaf hagur fyrir fjölskyldu að hafa alla í vinnu, sinna verkefnum sem spara útgjöld, auka tekjur - eða leggja grunn að þessu. Þá skiptir engu máli þó peningar skipti oft um hendur innan fjölskyldunnar.



