Hoppa í efni

Réttlætismál í forgrunni

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.09.2003

Í dag kynnti stjórnarandstaðan helstu baráttumál sín fyrir komandi þing sem hefst á morgun. Athygli vekur að bæði Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn ætla að leggja áherslu á tvö afar mikilvæg réttlætismál: Aðskilnað ríkis og kirkju og að gera landið að einu kjördæmi. Forystumenn þessara flokka eiga þakkir skildar fyrir að vekja athygli á þessum málum.

Sérstaklega verður spennandi að sjá hvernig þingheimur mun taka í tillögur um aðskilnað ríkis og kirkju. Samkvæmt könnunum Gallups hefur meirihluti landsmanna (um eða yfir 60%) verið fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju. Talsmenn stjórnarliða hafa þó iðulega talað gegn aðskilnaði ríkis og kirkju, og þar með gegn fullu trúfrelsi.

Sólveig Pétursdóttir fyrrverandi kirkjumálaráðherra sagði til að mynda á fundi sem kirkjuráð Þjóðkirkjunnar hélt síðastliðinn apríl með fulltrúum allra þingflokka að hún teldi að ekki ætti að aðskilja ríki og kirkju. Benti hún máli sínu til stuðnings á að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins hafi verið ályktað um mikilvægi ,,kristilegs siðgæðis“ í samfélaginu. Björn Bjarnason, núverandi kirkjumálaráðherra, hefur ítrekað lýst svipaðri skoðun.

Jónína Bjartmars sem var fulltrúi Framsóknarflokksins á ofangreindum fundi sagðist einnig vilja vernda og styrkja kirkjuna frekar vegna þess að:

,,Hér ríkir kristilegt siðferði. Margt í öðrum trúarbrögðum stangast á við gott siðferði, til dæmis múhameðstrú og hvernig hún skilgreinir stöðu kvenna.“

Það er því ekki mikil von til þess að breytingar verði á tengslum ríkis og kirkju á meðan núverandi stjórn er við völd.

 

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.