Hoppa í efni

Ó ertu leigjandi? Mér er svoleiðis skítsama!

Matthías Freyr Matthíasson | 11.02.2014

Ég er í fyrsta sinn á leigumarkaði. Ég bý í dag í íbúð sem ég átti en Landsbankinn eða Hömlur 1 sem er dótturfélag Landsbankans tók af mér síðastliðið vor. Ég grét það ekkert rosalega mikið þar sem ég er ekki sá eini sem hef lent í því að missa eignina ,,mína“. Samkvæmt lögum, sem vonda vinstri stjórnin kom á,  getur sýslumaður ákvarðað að sá sem var eigandi íbúðarinnar og með lögheimili á staðnum fái að búa í íbúðinni í 6 – 12 mánuði eftir að bankinn tekur hana af ,,eigandanum“.

Sýslumaður ákvarðar leigu sem í mínu tilfelli er 95.000 kr á mánuði fyrir utan hita og rafmagn. Ég bý í 70fm tveggja herbergja íbúð. Ég á 6 ára gamla dóttur sem býr hjá mér aðra hverja viku. Ég þarf því húsnæði sem rúmar okkur bæði, aðra hverja viku í það minnsta. Nú fer að líða að því að 12 mánaða fresturinn sem sýslumaður gaf mér í fyrra renni út og ég þarf því að fara að huga að því að finna mér annan samastað. Því fór ég á stúfana og skoðaði helstu auglýsingavefi landsins, mbl.is, visi.is, leiga.is, bland.is og síðan eru leiguhópar inni á Facebook.

Ég þarf varla að taka það fram, því að ég tel að flestir almennir borgarar séu á sömu skoðun, en mér blöskraði leiguverðið. Það er hægt að finna ótal mörg og þá meina ég ótal mörg dæmi um húsnæði í boði á verði sem eru svo gjörsamlega út úr öllu korti. Þegar ég skrifa þetta fann ég á 5 mínútum fullt af mismunandi dæmum um fáranleikan sem er í gangi.

  • 3gja herb, 100fm í Hafnarfirði á 190.000kr. Krafist þriggja mánaða ábyrgðar.
  • 20fm stúdíó íbúð. 60.000 kr.
  • Herbergi til leigu, Breiðholt. 55.000 kr.
  • 10fm herbergi til leigu. 60.000 kr.
  • 10fm herbergi til leigu. 75.000 kr.

Þetta eru fáranlegustu dæmin. Það sem ég er að leita að eru 2 – 3 herbergja íbúðir. Gangverðið á þeim er í kringum 160.000 kr. Yfirleitt er krafist 2 – 3 mánaða leigu í tryggingu og svo á eftir að greiða hita og rafmagn. Ég á ekki rétt á húsaleigubótum nema að mjög litlu leyti, því að ég fyrir það fyrsta er barnið mitt ekki skráð með lögheimli hjá mér, sem er annar fáranleiki og hef ég minnst á í öðrum greinum hér  Skoðun.is.  Í annan stað er ég svo með of háar tekjur! Ég fæ yfirleitt útborgað í kringum 230 – 250.000 á mánuði. Reikningsdæmið gengur því ekki upp.

Samt virðast ráðamenn, hvort sem um er að ræða ríksins eða sveitastjórna, ekki hafa nokkrar einustu áhyggjur af þeim stóra hópi sem eru í þeirri stöðu að þurfa að leigja. Það eru einhverjar óljósar hugmyndir uppi um hvernig skuli bæta úr þessari stöðu sem er á markaðnum. Líkt og oft áður þarf að skipa nefndir til þess að ræða um hvernig best sé að ræða þessi mál innan nefndarinnar sem síðan ræðir málin yfir í aðra nefnd.

Ekki virðast forkólfar launþega í landinu, ASÍ eða aðrir, vera með hugann við þessi mál. Heldur snýst allt um 2% launahækkun og síðan um að rífast innbyrðis.

Það þarf að koma til móts við leigjendur. Það þarf að lagfæra þann aðstöðu mun sem umgengisforeldrar á leigumarkaði búa við. Síðan þarf að koma því þannig við að bankarnir megi leigja út eignirnar sem þeir taka yfir. Ég í það minnsta fékk það svar frá Hömlur 1 í dag að enginn möguleiki væri á að leigja eignina áfram eftir að tíminn minn rennur út því að þeir megi ekki leigja samkvæmt lögum. Sama þótt ég útskýrði stöðuna, að það væri ekki margar eignir í boði, ég á barn sem býr hjá mér og er í grunnskóla í hverfinu og svo margt annað.

Ef versti möguleikinn í stöðunni kemur upp að þá endar það með því að ég þurfi að hætta að vera með dóttur mína aðra hverja viku og fara yfir í það að vera helgarpabbi. Ég þarf þá að flytja inn á einhvern og skerða lífsgæði mín og dóttur minnar, sem á rétt á því samkvæmt lögum að vera í samvistum við mig, allverulega.

Ég vona svo innilega að til þess komi ekki.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Svanur Sigurbjörnsson 11. febrúar 2014 · á Facebook

    Það er eins og að nær allir leigi út íbúðir sínar með 120-140 þús. kr. áhvílandi mánaðarlega þegar í raun eru það ekki nærri allir sem skulda svona mikið í eign sinni. Fasteignaverð, fasteignagjöld, viðhaldskostnaður, lánakjör og umgengni leigjenda (almennt) hljóta að hafa áhrif á leiguverðið ásamt ágóðavoninni. (gamla góða græðgin). Hverjar sem ástæðurnar eru þá er þetta ófremdarástand og orsök fátækragildu fyrir marga, sérstaklega einstætt fólk með eða án barna.

  2. Mikael Þorsteinsson 11. febrúar 2014 · á Facebook

    Sæll Matthías og já ég er sammála þér.. leigumarkaðurinn er algjörlega útúr korti. Ég er einn þeirra sem er í þannig starfi að ég fæ útborgað í kringum 220-230 þúsund krónur á mánuði en er þó einhleypur og barnlaus. Er að leigja 40 fm stúdíó á 115.000 kr á mánuði og er mjög sáttur við það, þar sem innifalið er hiti og rafmagn. Ég fæ svo 15.000 kr í húsaleigubætur.. 96.000 kr skerðing árlega vegna hárra tekna (bara djók). Nú heyrði ég í fréttum útvarps í haust.. að það borgi sig ekki að hrúga niður leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu, því það gæti leitt til þess að offramboð yrði á íbúðum sem gæti leitt til þess að leiguverð MYNDI LÆKKA!!!! er fólk sem stjórnar þessu landi ekki alveg með heilann á réttum stað? Það sem eftir stendur hjá mér mánaðarlega eru um 60-80 þúsund krónur eftir húsaleigu og helstu reikninga (og það fer eftir því hversu miklar tekjur ég hef í aukavinnu einnig).. Verst að þeir sem stjórna þessu landi, halda því i raun fram að enginn hérlendis sé á tekjum undir 450.000 …

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Matthías Freyr Matthíasson

Allar greinar höfundar (11) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.