Hoppa í efni

Málefni aldraðra enn í fjölmiðlum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 27.02.2006

Það er gaman að verða vitni að áhuga fjölmiðla síðustu daga á því að fjalla um málefni aldraðra. Áberandi er hversu mikið NFS og aðrir 365 miðlar hafa fjallað um þessi mál. Ég þakka umræddum fjölmiðlum fyrir að sýna þessu mikilvæga máli áhuga. Hér fyrir neðan eru tenglar á þær fréttir sem ég hef fundið á netinu.
[síðast uppfært 4. mars 2006 – Ég hvet lesendur til að senda mér tengla á tengdar fréttir og umræður sem birtast á netinu]

Málefni aldraðra aftur til umfjöllunar á fréttavakt NFS e.h. – 3. mars
(Talað við Ólaf Ólafsson og Ástu Möller)

Enn fjallað um málefni eldir borgara á fréttavakt NFS f.h. – 2. mars
(Rætti við Birnu K. Svavarsdóttur hjúkrunarforstjóra á Eir og Önnu Birnu Jensdóttur
hjúkrunarforstjóra á Sóltúni.)

Óánægja með tekjutengingu. Fréttir á Vísir – 1. mars

Fjallað aftur um mál ömmu og afa á fréttavakt NFS f.h. – 28. febrúar.
(Talað við Dagmör Huld Matthíasdóttir – hjúkrunarforstjóra Sunnuhlíðar, Jóhann Árnason – framkvæmdastjóra Sunnuhlíðar og Svanhildi Þengilsdóttir yfirmann þjónustudeildar aldraðra í Kópavogi)

Heilbrigðisráðherra vonlítill á úrlausn eldri hjóna. Fréttir á Vísir – 27. febrúar

Viðtal við mig í Silfri Egils – 26. febrúar

Berst fyrir samveru afa síns og ömmu. Fréttir á NFS – 26. febrúar
Texti
Vídeó

Fá ekki að eyða saman síðustu æviárunum. Fréttir á NFS – 25.febrúar
Texti
Vídeó

Forseti Íslands segir óásættanlegt að hjón fái ekki að eyða síðustu ævidögum saman. Fréttir á NFS – 25. febrúar

Fjallað um ömmu og afa á fréttavakt NFS – 23. febrúar
(Hallgrímur Thorsteinsson tekur viðtal við ömmu, afa og pabba, sem stóðu sig öll eins og hetjur!)

Fjallað um málefni aldraðra (þar á meðal mál ömmu og afa) í hádegisviðtalinu á NFS – 23. febrúar.
(Logi Bergmann tekur viðtal við séra Pálma Matthíasson)

Viðtal við mig um málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni – 21. febrúar.
(Viðtalið hefst þegar 1 klukkutími og 22 mínútur eru liðnar af upptökunni)

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Óskar Arnórsson 27. febrúar 2006

    Hæ!

    Þetta með málefni aldraðra og greinin ásamt viðtali Sigurðar Hólm, er frábær. Það er meira tekið mark á ungu fólki. Ég er sjálfur í sömu stöðu með móður mína. Ég ætlaði ekki að trúa minum eigin augum og eyrum þegar ég kallaði á læknir heim, en móðir mín er búin að vera á biðlista fyrir elli- og hjúkrunarheimili í 7 ár nú, enda mjög veik. Læknirinn sem kom hringdi strax á sjúkrabíl sem fór með hana mikið kvalda á á bráðamóttöku. Þar er okkur sagt systkynunum að tvísýnt sé um líf hennar. Ég er engin læknir, en það þarf ekki að vera læknisfróður til að komast að þessari niðurstöðu. Hann var send af bráðamótökunni og á næstu deild á Borgarspítala. Þar kemur annar læknir "eldri og reyndari" kallast hann, og úrskurðar hanu færa til að útskrifast. Svo mikið lá á að útskrifa hana að ég átti ekki að fá að fara heim eftir fötum og skóm. Hjúkrunarkona kom með náttslopp og náttbuxur sem þeir höfðu þvegið. Náttsloppurinn var þurr en buxurnar blautar. Hjúkrunarkonunni fannst allt í lagi að hún færi í blautar buxurnar og þeir myndu aðstoða hana við að bera hana út í bíl. Ég fór samt heim og náði í föt og skó og allir á deildinni fóru í fýlu út í mig fyrir þetta. Þegar ég kom aftur og það átti að klæða hana komí ljós að hún gat ekki klætt sig, þó hún fengi aðstoð við það, vegna verkja. Það endaði með að hún var flutt með sjúkrabíl heim með verkjalyf.Hægt hefði verið hægt að spara öllum heilmikið ómak ef spítalarnir tilkynntu læknum og öðrum sérfræðingum sem vinna EKKI á spítölum að fólk er ekki velkomið þangað. Einn starfsmaður, læknir, sagði mér í trúnaði að hann ætlaði ekki að vinna þarna lengi til. Hann ætlaði til til útlanda vegna þess að allt heila sýstemið er allt í einu stóru rugli á spítalanum! Þetta var hans lýsing og hans orð. Mín skoðun er of ógeðsleg og viðurstyggileg til að ég myndi skrifa hana niður. Maður fer líka í ákveðið tilfinninga-uppnám sem skreytir líka venjulega heilbrygða skynsemi. En hvað um það. Þegar þjóðfélag er byggt upp með þeim móral í stjórmálum sem er einkennandi í dag, er ekki við öðru að búast. Ég hef eiginlega engan áhuga á, eða þekkingu á stjórmálum. En þegar maður sér fyrrverandi og núverandi buisnessmenn sem þingmenn, þá skilur maður þetta betur. Þingmenn með þann buissness-bakgrunn geta ALDREI tekið þátt í neinni lýðræðisstjórn. Einn þingmaður sem ég þekkti persónulega, en vil ekki nafngreina að sinni, er svo ógeðsleg padda að það er skömm að sjá hann tala "fínt" í blöðum og sjónvarpi um málefni eins og "móral". Þetta er náungi sem allir sem umgangast verða skítugir af að vera nálægt. Ef ríkisstjórn fer ekki að láta sjúkrahús og málefni aldraðra fá peninga sem skipta máli, endar þetta með ósköpum. Ég samhryggist öllum sem verða gamlir og veikir hér á landi. Og eitt er hægt að lesa úr íslensku stjórnmála-blaðri: "Það verða engar breytingar á stöðu illra setts fólks í landinu næstu árin" Það er löngu búið að eyrnamerkja peninga frá ríkinu, því íslensk þingmannahefð heldur áfram. Allir duglegir þingmenn verða að skilja eftir sig a.m.k. eitt "montstykki", brú, holu í gegn um fjall, nýjan togara, eitthvað stykki eins og göngubrú yfir veg sem engin notar,hærri þingmannalaun, eða eitthvað sem þeir geta keppt við hvern annan að framkvæma, allavegana sjá þeir ekkert sem er bráðnauðsynlegt. Ástand aldraðra er allavegana í þeim farvegi að þess er ekki langt að bíða að við verðum að senda SOS merki út í heim, til að fá tafarlausa aðstoð. Við sjáum kanski upphituð tjald-elliheimili í framtíðinni með "læknar án landamæra" í vinnu vegna hversu gáfnaljósin á þingi eru einfaldlega "heimablind" sem er annað orð yfir hættulega heimsku. Það kæmi betur út ef einhver færi að segja frá þessu ástandi í erlendum blöðum, og sjá þá hvort monthanarnir á þingi, byrji ekki á einhverjum framkvæmdum sem þarf að gera og hætta að einblína á eitthvað sem við getum verið án. Allt mitt líf snýst um þetta mál móður minnar í dag, eins og svo margra annarra í sömu stöðu. Ógeðslegt, svo ekki sé meira sagt. Óskar

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.