Hoppa í efni

Hugsjónum fórnað á altari flokkshollustu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.04.2002

Það kom fram í fréttum í gær að Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, væri megindráttum sammála þeirri gagnrýni sem fram hefur komið vegna væntanlegrar ríkisábyrgðar á lánum til Decode. Samt ætlar hann að fylgja flokkslínunni og greiða atkvæði sitt með þessu vafasama happadrætti á kostnað skattgreiðenda! Þetta er með ólíkindum. Samkvæmt 48. grein stjórnarskrá Íslands eru ,,Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína..." Vilhjálmur hefur hér hins vegar gerst sekur um að fara gegn sannfæringu sinni og svíkur þannig kjósendur sína, sem treysta því að þeir sem kosnir eru á þing séu sjálfstæðir einstaklingar sem berjast fyrir því sem þeir trúa á en hegði sér ekki eins og sauðfé.

Það er fátt eins blóðugt og þegar hugsjónum er fórnað á altari flokkshollustunnar...

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.