Hoppa í efni

Mulholland Dr.

Sigurður Hólm Gunnarsson | 20.04.2002

Veggspjald kvikmyndarinnar Mulholland Dr.Ég fór í bíó í gær með Binna vini mínum á Mulholland Dr. Það er skemmst frá því að segja að þessi mynd er mögnuð. Örugglega súrrealískasta mynd sem ég hef á ævinni séð. Leikstjóranum, David Lynch, tekst alltaf að búa til einstaklega draumkenndar mynd. Það má segja að honum takist að gera óraunveruleikann sem felst í draumkenndu ástandi raunverulegan.


Nú langar mig mikið til að sjá Lost Highway aftur en ég hef ekki séð hana síðan hún var sýnd í Laugarásbíói fyrir nokkrum árum. Ég man að ég gekk út úr þeirri mynd hugsandi með sjálfum mér: ,,Vá, þessum leikstjóra tókst að kvikmynda martröð“. Óraunveruleikinn sem felst í martröð var sérstaklega raunverulegur í Lost Highway.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.