Hoppa í efni

Stefán Einar, vondu múslimarnir og hin vestrænu gildi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.11.2026

Hér eru ummæli þriggja múslimskra prédikara um gyðinga:

„Það voru mistök hjá okkur að hafa ekki drepið þá [gyðingana].“ - Ahmed al-Nuri

„Fyrst ber að kveikja í samkunduhúsum þeirra eða skólum og grafa og hylja með mold það sem ekki brennur, svo enginn sjái nokkru sinni aftur stein eða ösku úr þeim.“ - Ibrahim al-Mansur

„Í öðru lagi ráðlegg ég að hús þeirra verði einnig jöfnuð við jörðu og eyðilögð.“ - Ibrahim al-Mansur

„Í þriðja lagi ráðlegg ég að allar bænabækur þeirra og Talmúdrit verði tekin af þeim.“ - Ibrahim al-Mansur

Hvað ætli Stefán Einar segi við þessu? Krefst hann þess að allir múslimar á Íslandi fordæmi mennina og afneiti trúarskoðunum þeirra? Þurfa þeir jafnvel að sanna að þeir eigi heima í vestrænu samfélagi?

Æ, nei. Þetta eru víst ekki orð múslima. Prédikararnir þrír eru skáldaðir. Orðin eru hins vegar öll eftir sama manninn: Martein Lúter. Já, þetta eru allt orð eftir manninn sem lúterska þjóðkirkjan okkar kennir sig við.

Lúter skrifaði ritið „Um gyðingana og lygar þeirra“ árið 1543. Þar hvatti hann meðal annars til þess að samkunduhús gyðinga yrðu brennd, heimili þeirra eyðilögð, trúarrit gerð upptæk og rabbínum bannað að kenna að viðlögðum líkamsrefsingum eða dauða. Hann lagði einnig til eignaupptöku, nauðungarvinnu og brottrekstur gyðinga.

Þetta voru ekki einhver óheppileg orð sem sluppu út í hita leiksins. Þetta voru útfærðar tillögur um trúarofsóknir.

Og gyðingahatrið var ekki eina birtingarmynd ofstækisins. Í bændauppreisninni árið 1525 hvatti Lúter yfirvöld til að beita uppreisnarmönnum banvænu ofbeldi. Í ritinu „Gegn hinum ræningjalegu og morðóðu bændahópum“ hvatti hann menn til að berja, drepa og stinga uppreisnarmenn, leynt eða ljóst. Sá er nú siðferðilegi leiðtoginn.

Lúter var jafnframt karlremba í fjórtánda veldi. Hann lagði mikla áherslu á hlutverk kvenna sem eiginkvenna og mæðra. Hann trúði á galdra og djöfulinn sem raunverulegt afl í lífi fólks. Sú glansmynd af hugrökkum umbótamanni sem okkur er gjarnan kynnt er kjaftæði.

Hitler var aðdáandi Lúters. Í „Mein Kampf“ skipaði hann honum meðal stórmenna sögunnar, ásamt Friðriki mikla og Richard Wagner. Nasistar nýttu gyðingahatur Lúters í áróðri sínum og bók hans „Um gyðingana og lygar þeirra“ var meðal annars höfð til sýnis í glerskáp á flokksþingum nasista í Nürnberg.

Ég fjallaði um þessa skuggahlið Lúters í grein árið 2003. Það að hann hafi haft mikil áhrif á trúar- og menningarsögu Evrópu afmáir ekki hatrið eða hvatninguna til ofbeldis.

Ég útskýrði þessa sögu meira að segja fyrir Stefáni Einari á fundi hjá Heimdalli sama ár. Eins og ég lýsti í grein minni um fundinn sakaði Stefán Einar, sem þá var guðfræðinemi, mig um lygar þegar ég sagði honum frá gyðingahatri Lúters. Hann hafði ýmislegt við menningu og trú múslima að athuga en virtist vita öllu minna um þessa hlið eigin trúarhefðar.

Er þá ekki kominn tími til að krefjast þess að Stefán Einar, og í raun allir sem kenna sig við Þjóðkirkjuna eða aðra lúterska kirkju, afneiti Lúter skýrt og óhikað? Að öðrum kosti verði þeir að flytja úr landi? Mögulega þurfi bara að banna Þjóðkirkjuna og alla lúterska trú. Hún samræmist jú varla hinum svokölluðu vestrænu gildum.

Eða gætum við viðurkennt að fólk ber ekki sjálfkrafa ábyrgð á öllum hryllingnum sem einhver hefur boðað í nafni trúar þess?

Það gildir um lúterstrúarmenn. Og það gildir líka um múslima.

Heimildir

Marteinn Lúter (1543). Um gyðingana og lygar þeirra (Von den Jüden und ihren lügen). Stafræn útgáfa frumritsins hjá Bæverska ríkisbókasafninu. Sjá einnig enskt textabrot hjá CCJR, í þýðingu Martins H. Bertram úr Luther’s Works (Fortress Press, 1971).

Sigurður Hólm Gunnarsson (27. október 2003). Marteinn Lúter – siðbótamaður eða siðleysingi?. Skoðun.

Sigurður Hólm Gunnarsson (31. október 2003). Mótmælandi Íslands. Skoðun.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (848) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.