Hoppa í efni

Hættur við að sparka í atvinnulausa

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.12.2003

Árni Magnússon, einnig þekktur sem "félagsmálaráðherra", hefur ákveðið að hætta við að leggja fram frumvarp á Alþingi um að skerða bótarétt atvinnulausra. Hefði frumvarpið verið samþykkt hefðu atvinnulausir ekki fengið bætur fyrstu þrjá dagana sem þeir væru án vinnu. Líklegast hafa forsvarsmenn Framsóknarflokksins áttað sig á því að það að sparka í atvinnulausa samræmist ekki slagorði flokksins um að hafa "fólk í fyrirrúmi".

Flest bendir þó því miður til þess að það hafi hvorki verið samviska né pólitísk sannfæring "félagsmálaráðherrans" sem gerðu það að verkum að hann hætti við leggja fram hið umdeilda frumvarp.

Í frétt sem var birt á mbl.is í gær segir m.a.:

"Árni sagðist telja mikilvægt að tekið verði til við endurskoðun á atvinnuleysisbótakerfinu í heild og sagðist vona að verkalýðshreyfingin komi að því máli. Forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar hafa sagt að þeir væru ekki til viðtals um slíka hluti ef frumvarpið um skerðingu atvinnuleysisbótanna yrði knúið fram."

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.