Hoppa í efni

Frjálslyndur afturhaldsseggur fjallar um áfengi í kjörbúðum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.10.2014

Ég drekk áfengi og finnst það oft gott. Ég er hlynntur lögleiðingu flestra (ef ekki allra) vímuefna, þó ég neyti þeirra ekki sjálfur, af því ég tel bannstefnuna í senn mannskemmandi  og vita gagnslausa (Sjá: Fíkniefnastríðið er tapað – skaðaminnkun er málið). Samt er ég ekki á því að það sé frábær og gallalaus hugmynd að leyfa sölu áfengis í kjörbúðum. Sala áfengis í matvöruverslunum snýst lítið um frelsi einstaklingsins og ekkert um skaðaminnkun.

Aðgengi að áfengi á Íslandi er gott. Það er hægt að kaupa áfengi alla daga vikunnar nema sunnudag í Vínbúðum víðs vegar um landið. Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að nálgast vínið sitt til klukkan átta á kvöldin.* Margar Vínbúðir eru í göngufæri frá lágvöruverslunum eða annarri þjónustu. Það er ekki hægt að segja að það sé eitthvað flókið eða erfitt fyrir fullorðið fólk að kaupa áfengi. Ég á því erfitt með að sjá að frelsi almennings sé stórkostlega skert með núverandi fyrirkomulagi.

Sérstaklega þegar litið er til þess að áfengi er ekki venjuleg vara. Áfengi er vímuefni. Líklegast eitt skaðlegasta vímuefni sem til er. Það dregur alltof marga til dauða, gerir fjölmarga fársjúka og á ríkan þátt í að eyðileggja heilu fjölskyldurnar. Sumir telja áfengi svo hættulegt að það eigi beinlínis að banna sölu þess. Ég er nú ekki sammála því enda skila bönn engu nema aukinni eymd og glæpavæðingu. Eftir stendur að alkahól er hættulegt efni og það er ekkert að því að gera sérstakar kröfur um sölu og dreifingu þess. Landlæknir og aðrir sem fjalla um heilbrigðismál benda á að aukið aðgengi myndi að öllum líkindum auka neysluna og valda frekari eymd að óþörfu.

Eftir stendur þá viðskiptafrelsið. Kaupmenn kvarta yfir því að geta ekki selt áfengi í búðunum sínum. Kaupmenn eru að tapa á núverandi fyrirkomulagi. Hvað með það? Kaupmenn mega almennt ekki heldur selja lyf eða byssur af sambærilegum ástæðum. Sumar vörur eru taldar það hættulegar að skynsamlegt er að hafa sérstakar og strangari reglur um sölu og dreifingu þeirra. Fólk á ekki að taka afstöðu til sölu áfengis í matvöruverslunum út frá hagsmunum kaupmanna.

Niðurstaða
Ef frelsi almennings er ekki stórkostlega skert með núverandi fyrirkomulagi og aukið aðgengi veldur að sama skapi aukinni eymd að óþörfu er fátt sem mælir með því að færa sölu áfengis inn í matvöruverslanir. Helst yrðu það kaupmennirnir sem myndu græða á því. Þá er lýðheilsa mikilvægari að mínu mati.

*Sumir kvarta yfir því að aðgengi fólks á landsbyggðinni að áfengi sé lélegt þar sem engar eru Vínbúðirnar. Það er ekki stórmál að laga það litla vandamál með sérlausnum.

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Viktor Orri Valgarðsson 23. október 2014 · á Facebook

    Ég er ósammála, þó ég skilji vel sjónarmiðið um að reyna að lágmarka samfélagsskaða.

    Aðeins eitt í bili - ég skil ekki alveg hvernig er hægt að halda því fram á sama tíma að frjáls sala muni litlu breyta um aðgengi, og að neysla á áfengi mundi aukast verulega við svo búið?

    Hvers vegna eykst neyslan verulega - ef aðgengið er nú þegar svona prýðilegt og frelsisskerðingin engin?

  2. Jón Grétar Borgþórsson 23. október 2014 · á Facebook

    Æji ég er svona á báðum áttum.

    Fyrsta lagi er ég ekkert svakalega ósáttur við núverandi aðgengi. Hinsvegar sé ég ekkert stóra samfélagslega ástæðu fyrir að banna Hagkaup að selja rauðvín með steikinni úr kjötborðinu. Fólk sem missir sig í áfenginu mun gera það sama hvar það þarf að kaupa það. Enda ekki ólöglegt að vera alkahólisti.

    Ég er hinsvegar á því að Vínbúðirnar eigi að halda sér þó að leyft verði sölu í almennum búðum. Góðar og ódýrar búðir með mjög gott úrval. Ef Vínbúðunum verður lokað þá getum við átt von á einhverri 15-30% hækkunum á víninu mundi ég halda. Þar sem Vínbúðirnar eru með töluvert lægra, og lögbundið, álag heldur en gengur og gerist í búðum. Á fínni víntegundum, sem eru kanski í takmörkuðu upplagi, gæti hækkunin numið hundruðum prósenta jafnvel (í versta falli).

  3. Sigurdur Holm Gunnarsson 23. október 2014 · á Facebook

    Ég held ekki að himinn jörð farist þó áfengi fari í kjörbúðir. Ég sé bara ekki þessa miklu þörf fyrir að hafa aðgengi að þessu vímuefni í matvöruverslunum. Er hér að reyna að draga fram ólíka hagsmuni. Ef (og það er stórt ef) böl vegna áfengisneyslu eykst ef áfengi er selt í búðum þá finnst mér ekki mikil frelsisfórn hjá okkur áfengisneytendum að fara bara áfram í sérstaka vínbúð.

    Þetta er varla sambærilegt við bjórbannið. Það er enginn að leggja til að áfengi verði bannað.

  4. Guðjón G. Daníelsson 23. október 2014 · á Facebook

    Þér algerlega sammála þarna Sigurður.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.