Nú er enn ein skýrslan komin út um sukkið sem virðist vera allsráðandi í íslensku samfélagi. Sú nýjasta fjallar um hjúkrunarheimilið Eir. Ég hef áður fjallað um íslensku hrægammana sem hafa farið illa með eldri borgara. Það er vægast sagt ljótt.
Í nýrri skýrslu Deloitte kemur fram að margt hafi verið óeðlilegt við skipulag og rekstur Eirar. Ekki var fært í bókhald í samræmi við lög og almenna bókhalds- og reikningsskilavenju. Framkvæmdastjóri bjó til stöður fyrir venslafólk sitt. Greiðslur úr „þróunarsjóði“ upp á 2,7 m.kr. vegna dagpeninga, flugferða, gistinga og veitinga erlendis. Ekki „verður sýnt fram á að greiðslurnar tengist með beinum hætti rekstri Eirar“ segir í skýrslu Deloitte.
Nú hef ég bara eina spurningu. Mun einhver sæta ábyrgð?
Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
Þetta er svo ógeðslegt að orðin ein duga ekki, enda er ég orðlaus.
Svívirðilegt og svo var það prestur sem var yfir þessu. Skyldi verða tekið lögtak hjá þessu liði fyrir skuldum eins og hefur verið gert hjá unga fólkinu sem hefur verið að tapa heimilum sínum undanfarið?
Maður veit varla hvor er vitlausari, Vilhjálmur sjálfur fv. frkstj. Eirar eða sá/þau sem réðu manninn, nýkominn úr borgarstjórastólnum með hneyksli á bakinu.



