Hoppa í efni

Ég sætti mig ekki við lygar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.03.2014

Í mínum huga snýst umræðan undanfarna daga ekki um Evrópusambandið, hún snýst ekki um aðildarviðræður, hún snýst ekki um Framsóknarflokkinn og hún snýst ekki um Sjálfstæðisflokkinn. Umræðan snýst ekki um flokka yfirleitt. Umræðan snýst einfaldlega um það hvort við kjósendur séum búnir að sætta okkur við að stjórnmálamenn ljúgi.

Við kennum börnum okkar að það sé ljótt að segja ósatt. Við vitum flest að það er siðlaust að skrökva til þess eins að græða á lygunum.

Ég sætti mig ekki við grímulausar lygar og ég er viss um að meirihluti samlanda minna sættir sig ekki við þær heldur. Þess vegna skrifa ég undir á thjod.is og mótmæli.

Ef þú sættir þig ekki við lygar bið ég þig, í það minnsta, um að skrifa undir á thjod.is. Ef þú mögulega getur bið ég þig um að mæta á mótmælafundi.

Það mótmælir enginn fyrir þig. 

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.