Hoppa í efni

Detox læknar óttast að vera drepnir af lyfjafyrirtækjum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 02.11.2009

Jónína Benediktsdóttir hefur loksins gefið trúanlega útskýringu á því hvers vegna ekki hafa verið birtar neinar fræðilegar rannsóknir um gagnsemi detox meðferðar. Ástæðan er ótti detoxlækna við útsendara lyfjafyrirtækja.

„Pólsku læknarnir sem rannsaka detox hafa báðir sagt við mig að þær þori ekki að birta nokkuð um detoxið af ótta við að vera drepnar af lyfjafyrirtækjunum.“ [leturbreytingar SHG] –  Þetta segir Jónína Ben í faglegri umræðu um detox á netinu (en ekki hvar?).

Hér er augljóslega um stórfrétt að ræða sem ég treysti að íslenskir blaðamenn skoði ofan í kjölinn.  Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum af vefsíðu Detox á Íslandi skilar detox meðferðin undraverðum árangri. Þannig hafa skjólstæðingar Jónínu losnað við þunglyndi, kvíða, vefjagigt, liðagigt, sýkingar, háan blóðþrýsting, exem, sykursýki og einn hefur jafnvel losnað við einkenni MS (Multiple sclerose).  Detox virðist því næstum því vera álíka öflug meðferð og Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun, Bowen tækni, hómópatía og lithimnufræði.

Vandinn er að hingað til hafa engar rannsóknir sýnt fram á þessi byltingarkenndu áhrif detox meðferðar. Gagnsemisupplýsingarnar eru komnar frá skjólstæðingum Jónínu sem dásama meðferðina með „vitnisburði“* sínum.  En nú er semsagt komið kjörið tækifæri til að breyta þessu. Íslensk stjórnvöld geta nú veitt detoxlæknunum pólitískt hæli hér á landi svo þeir geti birt rannsóknir sínar óáreittir. Ég get hugsað mér fátt betra fyrir ímynd Íslands en að veita tveim verðandi nóbelsverðlaunahöfum í læknisfræði öruggt skjól.

*Skemmtileg tilviljun að orðið „vitnisburður“ er einatt notað á trúarstöðinni Omega þar sem hinir trúuðu útskýra hvernig þeir hafa læknast með hjálp Jesú*.

Sjá nánar:

Hvers vegna EKKI detox! (eftir Svan Sigurbjörnsson lækni)

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Svanur Sigurbjörnsson 2. nóvember 2009

    Já aumingjans pólsku læknarnir.  Ég skil þá vel því að þetta er gríðarlega mikið vandamál.  Ég hef mælt mikið með líkamsrækt og megrun við skjólstæðinga mína, en það er alveg nýtt af nálinni og hefur stórminnkað lyfjasölu.  Ég geng um með falskt yfirvaraskegg og skalla úr plasti (sundhettu) til þess að leynimorðingjar lyfjafyrirtækjanna finni mig ekki.   Það er niðurdrepandi að vera læknir þessa dagana.  😉

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.