Hoppa í efni

Af hverju ég kýs Samfylkinguna

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.04.2009

Í fyrsta skipti í nokkuð langan tíma hef ég tekið virkan þátt í kosningabaráttu fyrir alþingiskosningar. Ástæðan er sú að ég tel afar mikilvægt að eftir kosningar taki við vinstri-jafnaðarstjórn undir forystu Samfylkingarinnar. Nú vita þeir sem þekkja mig að ég er varla mjög flokkshollur maður og oft ósammála fulltrúum Samfylkingar. Það þarf því nokkuð til að ég nenni að taka þátt í kosningabaráttu. Eins og staðan er í dag tel ég þó að valkostirnir hafi sjaldan verið skýrari. Ástæðurnar fyrir því að ég kýs og styð Samfylkinguna heils hugar nú eru eftirfarandi:

1) Jóhanna Sigurðardóttir

Ég treysti engri manneskju betur til að standa vörð um velferðakerfið, hag heimilanna og réttindi þeirra sem minna mega sín en Jóhönnu Sigurðardóttur. Á þetta sérstaklega við ástandið eins og það er nú. Íslenska ríkið er stórskuldugt og augljóst er að einhvers staðar þarf að draga saman seglin og skera niður. Ég veit að Jóhanna mun gera sitt besta til að tryggja að sá niðurskurður komi sem allra minnst niður á þeim sem verst hafa það.

2) Sækja þarf um aðild að ESB

Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur það á stefnuskrá sinni að sækja um aðild að ESB og leggja aðildarsamning undir dóm kjósenda. Það hefur verið karpað um ESB í um 20 ár og enginn botn komist í þá umræðu. Menn geta rætt um kosti og galla ESB þar til þeir verða bláir í framan, niðurstaða fæst ekki þar til við setjum okkur samningsmarkmið, sækjum um aðild og sjáum hvaða samningum við náum. Best væri auðvitað að ríkisstjórn Samfylkingar og VG sjái um aðildarviðræður. Samfylkingarfólk er flest mjög hlynnt inngöngu í ESB á meðan meðlimir í VG eru margir hverjir algerlega á móti. Samningaviðræður undir stjórn þessa tveggja flokka tryggir að umræðan verður ekki of einhliða.

3) Kominn tími á vinstristjórn

Nú, eftir bankahrun í boði Sjálfstæðisflokksins, er kominn tími á vinstristjórn þar sem félagsleg gildi eru sett á oddinn. Ég hef ekki alltaf verið þessarar skoðunar. Hef til að mynda oft verið hlynntur samstarfi jafnaðarmanna og frjálslyndra sjálfstæðismanna. Ekki nú. Nú er kominn tími til að þjóðin fái langa hvíld frá Sjálfstæðisflokknum.

4) Frjálslynd jafnaðarstjórn

Mikilvægt er að næsta stjórn (vonandi vinstristjórn) verði hér eftir kosningar undir forystu Samfylkingarinnar. Ég viðurkenni að mér hefur þótt Vinstri grænir oft allt of íhaldssamir og forsjárhyggjusinnaðir fyrir minn smekk. Því er mikilvægt að Samfylkingin leiði væntanlegt samstarf vinstriflokkanna. Samfylkingin er að mestu leyti frjálslyndur flokkur og umburðarlyndur. Frjálslynd vinstristjórn verður ekki mynduð án forystu Samfylkingarinnar.

5) Spilin upp á borðið

Á næsta kjörtímabili þurfa að fara fram mikilvæg uppgjör. Það þarf að rannsaka orsakir og afleiðingar bankahrunsins, vinda ofan af spillingu og sjá til þess að þeir sem bera ábyrgð beri hana. Aftur treysti ég engum stjórnmálamanni betur en Jóhönnu Sigurðardóttur til þeirra verka. Hún hefur ávallt barist gegn spillingu og fyrir lýðræðislegum leikreglum og verið gagnrýnd fyrir vikið.

Þetta eru, í stuttu máli, ástæðurnar fyrir því að ég styð Samfylkinguna heils hugar nú. X-S.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ásta Norrman 16. apríl 2009

    Sammála þér um það mesta eins og fyrri daginn. Ég er á leiðinni til Gautaborgar á morgun, 120 km ferð, aðalega til að kjósa Samfylkinguna. Aðalástæðan er ESB, sem ég held sé nauðsynlegt Islandi, end líka vegna þess að það vantar vinstri stjórn á Islandi. Ég hef bara áhyggjur af ESB, mér skilst að Samfylkingin sé ein um að vilja sækja um aðild.
    baráttukveðjur frá Astu í Sverige

  2. Aðalsteinn Kjartansson 19. apríl 2009

    Ég er þér hjartanlega sammála!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.