Hoppa í efni

Ekki fyrsta ritskoðunin

Sigurður Hólm Gunnarsson | 15.12.2008

Jón Bjarki Magnússon, fyrrverandi blaðamaður á DV, hefur nú sagt frá reynslu sinni af ritskoðun. Á Jón Bjarki hrós skilið fyrir að segja frá þessari reynslu opinberlega. Ritskoðun þrífst fyrst og fremst í skjóli starfsmanna fjölmiðla sem þora ekki að segja frá.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslenskir fjölmiðlar hafa orðið uppvísir að ritskoðun og reyndar ekki í fyrsta sinn heldur sem Reynir Traustason fer með ósannindi til að hylma yfir óheiðarleg vinnubrögð vinnuveitenda sinna.

Þegar ég upplýsti fyrir nokkrum árum að Jón Ásgeir hefði haft bein afskipti af fréttaflutningi á Vísir.is (þar sem ég var blaðamaður) kallaði Reynir Traustason málflutning minn slúðurkenndan. Eins og nú var hann þá óheppinn að því leyti að ég átti tölvupósta sem studdu mál mitt, auk þess sem ég var með vitni að samskiptum mínum við ritstjórn.

Eftir að mál mitt komst til umfjöllunar sögðu nokkrir fyrrverandi og núverandi blaðamenn mér frá því að þeir hefðu lent í svipaðri reynslu. Enginn hafði sagt frá reynslu sinni opinberlega af ýmsum ástæðum.

Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllunina sem þá átti sér stað.

Sjá hér:
Greinar um ritskoðun.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Brynjólfur Þór Guðmundsson 7. janúar 2009

    Nú er ég farinn að halda að einhver sé farinn að ritskoða Sigga vin minn. Óvenju langt síðan hann hafði síðast eitthvað að segja.

  2. Helgi Hrafn Gunnarsson 26. janúar 2009

    Mér finnst stundum eins og að vér Íslendingar trúum því ekki að neitt sem gerist í bíómyndum gerist í raunveruleikanum líka, eða að land okkar sé svo lítið að spilling og ritskoðun viðgangist ekki hér.

    Svo er auðvitað til lagaleg ritskoðun. Það er bannað að opinberlega segja meira eða minna allt og ef maður segir eitthvað ljótt um einhvern sem hefur fjárhagslegra hagsmuna að gæta, þá getur viðkomandi kært mann fyrir meiðyrði, og þá er það manns eigin ábyrgð að sanna orð sín, ekki hans að sanna að maður hafi verið með meiðyrði.

    Ofan á það er lögsókn nógu mikil ógn til að fólk haldi kjafti þegar það getur.

    Tjáningarfrelsi á Íslandi er líka mjög bækluð hugmynd. Hún er þannig að hver maður hefur rétt á að tjá skoðanir sínar, svo lengi sem þær skoðanir koma engum illa, hvorki sálarlega né fjárhagslega, og svo lengi sem það vilji ekki svo til að skoðun manns sé bönnuð. Sjá 73. gr. stjórnarskrárinnar sem beinlínis heimilar yfirvöldum að banna manni að segja nokkurn skapaðan hlut. Ég get ekki ímyndað mér eina einustu umdeildu skoðun sem yfirvöld mættu ekki banna samkvæmt "tjáningarfrelsisgrein" okkar.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.