Hoppa í efni

„Af hverju ég er ekki kristinn“ komin út á íslensku

Sigurður Hólm Gunnarsson | 24.01.2006

Ívar Jónsson, prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, hefur íslenskað ritið Af hverju ég er ekki kristinn (Why I am not a Christian) eftir breska heimspekinginn og friðarsinnann Bertrand Russell. Ég hvet alla til að kíkja á þessa þýðingu sem meðal annars er að finna á vefnum. Ég hef ekki komist í að lesa alla íslensku þýðinguna en ég hef lesið ritið á ensku og mæli eindregið með því.

Fréttatilkynning vegna þýðingarinnar
Ritið Af hverju ég er ekki kristinn eftir breska heimspekinginn Bertrand Russell er komið út í þýðingu Ívars Jónssonar prófessors við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Í ritinu færir Russell rök í anda trúleysingja gegn tilvist guðs og siðferðilegum heilindum Jesú Krists. Ritið er gefið út pappírsformi, en auk þess er það birt í stafrænu formi á netslóðinni http://www.bifrost.is/Files/Skra_0011590.pdf

Bertrand Russell (1872-1970) var einn þekktasti heimspekingur Breta. Hann var fjölhæfur maður og afkastamikill. Hann skrifaði yfir 70 bækur og um 2000 greinar. Árið 1950 hlaut hann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Russell var einn helsti forsprakki analýtískrar heimspeki og var einkum þekktur fyrir framlag sitt á sviði rökfræði og heimspeki stærðfræðinnar. Meðal almennings var Russell þekktur fyrir friðarbaráttu sína, en hann var m.a. ötull andstæðingur kjarnorkuvopna og Víetnam stríðsins. Russell var dæmdur í viku fangelsisvist í Bretlandi 1961 fyrir þátttöku í mótmælaaðgerðum gegn stríðinu í Víetnam og ræðu sem hann hélt í Hyde Park, þá 89 ára gamall. Hann var þó einkum frægur fyrir skrif sín um stjórnmál, samfélagsmál og siðferðileg málefni.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.