Hoppa í efni

Próf og lestrarjól

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.01.2006

Ég hef verið hrikalega latur við að uppfæra Skoðun síðustu misseri eins og lesendur hafa tekið eftir. Helsta ástæðan er sú að ég hef haft mikið að gera. Ég var til dæmis í prófum í desember sem ég þurftu að einbeita mér að. Eftir prófin notaði ég tímann vel til að lesa bækur sem ekki tengdust skólanum. Allt bækur sem ég mæli eindregið með.

Á fyrstu önninni í iðjuþjálfun (sem lauk nú um áramótin) var áfangi í heimspeki, eða öllu heldur siðfræði. Þetta voru stórskemmtilegir tímar sem að vöktu áhuga minn á að lesa meira um heimspeki. Ég varð mér því út um Utilitarianism eftir John Stuart Mill og nokkrar bækur eftir hinn umdeilda en skemmtilega heimspeking Peter Singer (Practical Ethics, Animal Liberation, Rethinking Life and Death og President of Good and Evil). Svo las ég nýjustu bók Al Franken – The Truth.

Þetta eru allt mjög áhugaverðar bækur. Ég mæli eindregið með Practical Ethics fyrir þá sem hafa áhuga á heimspeki. Hún er afar vel skrifuð og laus við allt jargon og formlegheit. Hver sem er, sem kann ensku vitaskuld, getur lesið þessa bók og haft gaman af. Að sama skapi mæli ég með President of Good and Evil og The Truth fyrir þá sem hafa gaman að lesa um bandarísk stjórnmál. Al Franken (The Truth) fjallar um Bush og félaga á kómískan máta á meðan Peter Singer (President of Good and Evil) skrifar um siðferði Bandaríkjaforseta (sem ekki er upp á marga fiska).

Á náttborðinu mínu liggja nú enn fleiri bækur sem bíða eftir því að verða lesnar. Þar á meðal flestar bækurnar eftir líffræðinginn Richard Dawkins sem er væntanlegur á trúleysisráðstefnuna sem haldinn verður í Reykjavík í sumar. Er reyndar byrjaður að lesa The Blind Watchmaker (aftur, las hana fyrir löngu) og er hún frábær.

Aðrar bækur sem ég bíð spenntur eftir að lesa eru Ideal Code, Real World: A Rule-Consequentialist Theory of Morality (heimspeki) og The End of Faith: Religion, Terror, and the Future of Reason sem fjallar meðal annars um þátt trúarbragða í hryðjuverkum.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Eva Hauksdóttir 22. janúar 2006

    Gott að sjá að vefurinn er að rísa úr dvalanum. ég var farin að halda að þú værir hættur 🙂

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.