Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram frumvarp í vetur sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Ég fagna því og tel mikilvægt að fram fari málefnaleg umræða um málið. Eins og flestum er ljóst vekur staðgöngumæðrun upp fjölmargar siðferðisspurningar. Þessum siðferðisspurningum þarf að svara yfirvegað og fordómalaust.
Ekki er umræðan um viðkvæm mál alltaf mjög gagnleg eins og sést á femínska vefnum knuz.is. Þar var nýlega birt grein um staðgöngumæðrun sem ber titilinn: „Að leigja leg kvenna eins og geymsluskápa“. Greinin á Knúz hefur fengið gríðarlega dreifingu og þykir því líklegast góð. Ég er ekki beint sammála því.
Greinin er skrifuð í þeim leiðigjarna femíníska stíl að konur hljóti alltaf, einhvern veginn, að vera fórnarlömb.
Strax í fyrirsögninni er legi kvenna líkt við geymsluskáp sem er leigður út eins og hver annar hlutur. Sambærileg grein um líffæragjafir (t.d. þegar lifandi maður gefur einhverjum nákomnum nýra) gæti borið titilinn „að gefa líffæri eins og varahluti“ og kallað þannig fram svipuð hughrif. Það er að segja þau að komið sé fram við líkama mannsins eins og hverja aðra vöru.
Í greininni á Knúz er mjög ólíkum hlutum blandað saman og kapp er lagt á að gera staðgöngumæðrun tortryggilega. Gjörningurinn er bendlaður við „nýlendutímabilið“ og áhersla er lögð á fátækar konur í Indlandi og annars staðar í heiminum sem leigja legið sitt vegna fátæktar.
Mörgum siðferðilegum spurningum er kastað fram sem greinarhöfundur beinlínis vill ekki reyna að svara heldur hrapar hann að niðurstöðunni:
„Staðgöngumæðrun er allt of flókin, og málin of viðkvæm, til að hægt sé að leysa þau með nefndavinnu eða lagasetningum“.
Lokasvar greinarhöfundar er því: Staðgöngumæðrun á að vera bönnuð. Líka hér á landi í velgjörðarskyni.
Eitt af því sem gerir umræddan pistil, sem án efa er skrifaður af umhyggju fyrir fólki, vondan er einmitt þessi tilhneiging fólks að blanda ólíkum málum saman og draga af þeim einhverja algilda niðurstöðu.
Flestum má vera ljóst að það er lítið sem ekkert sambærilegt við að „leigja út leg kvenna í þróunarlöndum“ annars vegar og heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni undir ströngu eftirliti hér á Íslandi hins vegar.
Að banna fortakslaust staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni á Íslandi vegna þess að það er farið illa með konur í þróunarlöndunum er eins og að banna húsbyggingar á Íslandi vegna þess að það er farið illa með verkamenn í Kína. Aðstæður eru aðrar, lagaumhverfið og staða fólks almennt allt önnur. Svo er líka hægt að leysa flókin mál meðal annars með vandaðri „nefndarvinnu og lagasetningu.“
Í annarri grein á Knúz (sem er þó mun betri en sú fyrri) er konan aftur sjálfkrafa gerð að einhverju fórnarlambi:
„Á hinn bóginn finnst mér ekki réttlætanlegt að það sé samfélagslega samþykkt að biðja konur, eða fólk yfirhöfuð, að nota líkama sinn í þágu annarra. Þar af leiðandi efast ég um að það sé rétt að samþykkja löggjöf sem ýtir undir þá hugmyndafræði, að það sé eðlilegt að nota líkama kvenna sem leið að eigin markmiði.“
Í fyrsta lagi er hér gefið í skyn að konan sjálf hafi ekki sjálfstæða skoðun á málinu eða hún geti ekki staðist samfélagslegan þrýsting. Hér er verið að "biðja konur". Konur eru ekki að "bjóða fram aðstoð sína". Slík orðræða þykir mér beinlínis niðurlægjandi. Hér er verið að passa konur eins og börn. Þetta rímar ágætlega við það sem einn talsmaður Vinstri grænna sagði fyrr á þessu ári þegar ályktun gegn staðgöngumæðrun af öllu tagi var samþykkt af flokksmönnum:
„Staðan er ekki sú að konur séu hamingjusamar og frjálsar og geti tekið kærleiksríka ákvörðun um velgjörð… það er ekki raunveruleikinn.“
Ef þetta er svona í raun velti ég fyrir mér hvort konur á Íslandi séu þá yfirleitt færar til að taka nokkrar ákvarðanir sem hafa áhrif á líf þeirra.
Í öðru lagi gleymist það oft að hægt er að skilgreina alla vinnu, bæði sjálfboðavinnu og launaða vinnu, þannig að einstaklingar séu „að nota líkama sinn í þágu annarra“. Víðs vegar um heiminn í dag og almennt í gegnum aldanna rás hefur „hefðbundin“ vinna haft gríðarleg áhrif á heilsu fólks, bæði andlega og líkamlega heilsu.
Þar sem fátækt og misskipting ríkir og eymd er mikil má í raun segja að vinna sé ekkert annað en nútíma þrælahald.
Einar Már Jónsson lýsir þessu ágætlega í bók sinni Örlagaborgin:
„Eini munurinn á þessu [Vinnu þar sem fátækt er mikil og verkamenn hafa lítil sem engin réttindi – innskot SHG] og þrælahaldi í fornöld er sá að verkamaður nútímans virðist vera frjáls af því hann er ekki seldur í eitt skipti fyrir öll heldur um stundarsakir, einn dag, eina viku eða eitt ár í senn, og enginn einn eigandi selur hann öðrum. En með þessum hætti neyðist verkamaðurinn til að selja sig, hann er ekki þræll eins manns heldur heillar stéttar.“
Lausnin er þó ekki fólgin í því að við hættum öll að „nota líkama“ okkar. Lausnin felst í því að bæta aðbúnað fólks sem þarf eða ákveður að „nota líkama sinn í þágu annarra.“ Aðbúnaðinn má meðal annars bæta með réttindabaráttu, opinni umræðu og meira að segja með „nefndarvinnu og lagasetningu.“
Ég dreg alls ekki úr því að staðgöngumæðrun er flókið siðferðisálitamál og það þarf að vanda til verka þegar og ef staðgöngumæðrun verður leyfð hér á landi í velgjörðarskyni.
Hvað sem gerist þá þarf umræðan að eiga sér stað og hún verður að vera yfirveguð. Í slíkri umræðu er ekki gagnlegt að blanda mjög ólíkum hlutum saman eða gera beinlínis ráð fyrir að konur geti ekki haft frjálsan vilja og upplýstar skoðanir. Umræða á slíkum forsendum mun aldrei skila neinum árangri.
Skoða 7 athugasemdirFela athugasemdir
Samanburðurinn við líffæragjafir finnst mér óeðlilegur þar sem þar er oftar en ekki um að ræða spurningu um að bjarga lífi viðkomandi sem er varla tilfellið þegar rætt er um staðgöngumæðrun.
Auk þess tel ég nokkuð ljóst að flest samfélög hafi dregið ákveðna línu þegar kemur að því að skilgreina vinnu sem felur í sér nýtingu kynfæra með sama hætti og hefðbundna vinnu. Á móti kemur hins vegar að ákveðnir aðilar hafa bent á að það sé einnig óeðlilegt að löggjafinn ætlist til þess að konur gangi með annarra manna börn án þess að heimila þeim að fá neitt fyrir sinn snúð, þannig að ef það á að skilgreina þetta sem vinnu má þetta ekki bara vera heimilað í velgjörð.
Hér er yfirveguð grein um málið: http://www.visir.is/alitamal.../article/2011189101841...
Auðvitað þarf að greiða staðgöngumóður fyrir að ganga með barn fyrir annað fólk. Þetta er ferli sem tekur líklega heilt ár, þegar við bætast læknisrannsóknir, getnaður/frjóvgun og brjóstagjöf fyrstu vikuna eða vikurnar og konan getur ekki hagað lífi sínu að vild allan þennan tíma.
Höldum svo indverskum (þriðja heims) og íslenzkum (vesturlenzkum) staðgöngumæðrum aðskildum, því aðstæður þeirra eru gjörólíkar. Mér finnst umræðan á villigötum, þegar fólk er svo upptekiið af hugsanlegri fjárhagslegri neyð þriðjaheimsstaðgöngukvenna. Þær eiga kannski 10 börn fyrir og berjast í bökkum við að sjá þeim farborða. Hvað er að því, að hún fái vel greitt fyrir meðgöngu; jafnvel meira en hún hefur nokkurn tíma viðlíka möguleika á að þéna? Er ekki bara frábært, að foreldrarnir, sem gera við hana slíkt samkomulag, fái æðsta draum sinn uppfylltan, en að staðgöngumóðirin fái jafnframt einstakt tækifæri til að koma undir sig fótunum fjárhagslega, svo hún geti brauðfætt börnin sín 10? Ættu þá ekki allir að…GÓÐ GREIN
ÞETTA finnst mér vera algjört grundvallaratriði, sem sáralítið er í umræðunni um málið hér:
http://patent.blog.is/blog/patent/entry/1319113/Ég ætlaði svo sannarlega ekki að gefa í skyn að konur séu fórnarlömb sem hafa ekki sjálfstæðar skoðanir. Kannski hefði verið betra ef ég hefði orðað setninguna á eftirfarandi máta: Á hinn bóginn finnst mér ekki réttlætanlegt að það sé samfélagslega samþykkt að nota líkama fólks í þágu annarra. Þar af leiðandi efast ég um að það sé rétt að samþykkja löggjöf sem ýtir undir þá hugmyndafræði, að það sé eðlilegt að nota líkama fólks sem leið að eigin markmiði.
Ég er þó ekki viss um að slík endurorðun hefði endilega bætt um betur. Síðar í pistlinum bendi ég nefnilega á, að "[m]eð því að lögleiða staðgöngumæðrun þá gefum við þau skilaboð að það sé í lagi að biðja konur um að lána leg sitt og líkama mánuðum saman. Það gæti leitt til þess að það yrði töluvert erfiðara fyrir marga konuna að neita ástvini um aðgang að sínu legi."
Ég segi ekki, né gef í skyn, að konur geti ekki staðist samfélagslegan þrýsting. Ég bendi hinsvegar á að samfélagslegur þrýstingur getur haft áhrif, og hefur áhrif á m…
Gott innlegg í þessa flóknu umræðu um staðgöngumæðrun.



