Hoppa í efni

Á fólk að „gefa“ Landspítalanum skuldalækkun sína?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 13.11.2014

Nú er verið að skora á einstaklinga sem þurfa ekki á neinni „skuldaleiðréttingu“ að halda en fá hana samt til að „gefa“ Landspítalanum leiðréttinguna. Vissulega falleg hugsun en er því miður ekkert annað en brjáluð meðvirkni með kerfinu (rétt eins og hugmyndin um Læknavísindakirkjuna forðum).

Hvað næst? Á að biðja fólk að safna saman peningum sem það fær úr öllum skattalækkunum sem það „þarf ekki á að halda“ og gefa spítalanum?

Eigum við svo góðfúslega að biðja stórútgerðirnar um að „gefa“ velferðarkerfinu meiri pening af því þær borga svo lág auðlindagjöld?

Svo sendum við kannski næst bréf á auðmenn og segjum: „Viljið þið pretty please gefa okkur nokkra brauðmola svo við getum haldið úti lágmarks velferðarþjónustu?“

Þá geta allir sem eiga nóg af peningum gefið, jafnvel auglýst það svolítið, og fengið klapp á bakið og hrós fyrir hvað þeir séu nú frábærir.

Nei! Stjórnmálamenn eiga bara að hundskast til að gera hluti rétt. Af réttlæti, virðingu, samábyrgð og samhygð með öðru fólki.

Það er nóg til af peningum í þessu landi. Stjórnmálamenn þurfa bara að ákveða hvernig á að sækja þá og í hvað peningarnir eiga að fara.

Ég er kominn með meira en nóg af meðvirkni með ríkisstjórn ríka fólksins!

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Auður Sturludóttir 13. nóvember 2014 · á Facebook

    Góður pistill, sammála þessu.
    Smá stafsetningarathugasemd: http://malfar.arnastofnun.is/?p=13989

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heilsa og velferð

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.