Hoppa í efni

Bjálkinn og flísin

Sigurður Hólm Gunnarsson | 20.11.2026

Margrét Friðriksdóttir kvartar yfir því á Facebook að fólk birti skjáskot af ummælum hennar og gagnrýni hana. Hún segir líka að látnir foreldrar hennar hafi verið dregnir „inn í viðbjóðinn“ og að fólk hafi farið að „rakka þau niður líka“.

Þar tek ég undir með henni. Hvað eiga foreldrar hennar að gjalda fyrir það sem hún segir á Facebook? Og ef fólk fer þar með rangt mál um hana á hún auðvitað rétt á að benda á það. Það er ljótt að ljúga. Svo einfalt er það.

Ég hefði bara viljað að Margrét hefði sýnt fjölskyldu minni sömu tillitssemi. Þegar við deildum opinberlega í desember 2014 birti hún myndir af fjölskyldu minni á Facebook. Í skilaboðunum okkar frá þessum tíma sést að ég bað hana að hætta að deila myndum af fjölskyldu minni og vinum. Hún svaraði því til að hún hefði engan áhuga á fjölskyldu minni. Ég fékk á þessum tíma ofbeldishótanir frá öðrum vegna skrifa minna. Þess vegna var sérstaklega óþægilegt að sjá myndirnar birtast í miðjum þessum deilum.

Í sömu samskiptum sakaði Margrét mig um að hafa ítrekað hvatt fólk til að hata kristna trú. Ég bað hana um eina beina tilvitnun þar sem ég gerði það. Hún bauðst til að biðjast afsökunar á því að hafa misskilið eina tiltekna setningu en hélt fast við gagnrýni sína að öðru leyti. Ég hafði gagnrýnt tiltekna menn fyrir að daðra við fasisma. Í hennar endursögn var ég orðinn maður sem sagði að kristið fólk daðraði við fasisma. Það munar talsverðu á þessu tvennu.

Ég sagði Margréti strax að ég myndi birta erindið mitt til hennar og gerði það á Facebook. Tólf árum síðar er fróðlegt að lesa gömlu umræðuna og sjá hve fljótt deila um það sem einhver sagði gat orðið að deilu um það sem aðrir vildu hafa eftir honum. Boðorðið um að bera ekki ljúgvitni gegn náunga sínum hefði komið sér ágætlega í þeim þræði.

Ég er enn sammála Margréti um að láta fjölskyldur fólks í friði. Það gildir líka þegar fjölskyldan er mín.

Heimildir

Ég hvet ykkur til að lesa þennan þráð

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (857) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.