Pakistanski trúarleiðtoginn Muhammad Taqi Usmani hélt nýlega fyrirlestur í Stórmoskunni í Reykjavík. Samkvæmt fréttaflutningi hefur hann varið dauðarefsingu fyrir að ganga af íslam, aflimanir og grýtingu sem refsingar samkvæmt trúarlegum lögum og lagst gegn afglæpavæðingu samkynhneigðar. Þetta eru viðhorf sem eiga ekkert erindi í frjálst og umburðarlynt samfélag.
Formaður Stofnunar múslíma á Íslandi segir Usmani hafa komið hingað á eigin vegum, að bakgrunnur hans hafi ekki verið kannaður fyrir fram og að stofnunin taki ekki undir þessar skoðanir. Það er rétt að halda því til haga. Það breytir þó engu um nauðsyn þess að gagnrýna málflutning mannsins og spyrja hvers vegna honum var veittur vettvangur.
Auðvitað eigum við að fordæma slíkan miðaldarboðskap. Við eigum ekki að gefa afslátt af mannréttindum vegna þess að einhver telur sig hafa guðlega heimild til að traðka á þeim. Trúarskoðanir eru ekkert heilagari en aðrar skoðanir.
Ég hef í gegnum tíðina verið duglegur að gagnrýna fordómaþvaður af þessu tagi og mun halda því áfram. Ég vil búa í frjálsu og umburðarlyndu lýðræðissamfélagi þar sem allir njóta sömu mannréttinda. Þar á fólk meðal annars að hafa frelsi til að trúa, skipta um trú, hafna trú og elska hverja þá sem það elskar án þess að eiga á hættu ofsóknir eða refsingar.
Sú krafa verður að gilda um alla. Líka þá sem boða ofstæki í nafni kristni.
Munið þið eftir Gunnari Þorsteinssyni í Krossinum? Í grein minni frá 2004 tók ég saman ummæli hans þar sem hann kallaði samkynhneigða meðal annars „hunda“, „mannhórur“ og „kynvillinga“. Um Hinsegin daga sagði hann:
„Þetta er ekki ástæði til gleði, öllu fremur ógleði.“
Sami maður réttlætti dauðarefsingar með vísun í vilja Guðs:
„Guð gefur mannlegu réttarkerfi það vald í hendur að taka misgjörðamann af lífi.“
Þarna var grunnurinn skýr. Þegar maðurinn taldi Guð hafa talað var umræðunni lokið. Mannleg rök, reynsla og réttindi urðu að víkja fyrir því sem trúarleiðtoginn taldi vera vilja hins óskeikula.
Snorri Óskarsson, gjarnan kenndur við Betel, hafði líka sitt að segja. Þegar við í Siðmennt börðumst gegn trúboði í opinberum skólum spurði hann hvort við værum fulltrúar siðmenntunar eða „Satans-englar“. Síðan bætti hann við:
„Ég fæ ekki betur séð en að hér rætist í dag að Satan birtist enn í ‘ljósengils mynd’.“
Ég skrifaði um þetta árið 2006. Krafan um að börnum væri ekki boðuð trú í opinberum skólum dugði sem sagt til þess að við værum tengd við sjálfan djöfulinn. Það þurfti ekki meira til.
Og munið þið eftir Franklin Graham?
Árið 2013 tók Þjóðkirkjan þátt í svokallaðri Hátíð vonar með þessum bandaríska predikara, þrátt fyrir andstöðu hans við réttindi samkynhneigðra. Ég gagnrýndi þá að kirkja sem segðist vera fyrir alla tæki þátt í að veita slíkum málflutningi virðingu og vettvang.
Þáverandi biskup sagðist vilja leggja áherslu á það sem sameinaði þau. Hún hafði þó, að eigin sögn í viðtali sem ég fjallaði um á sínum tíma, ekki kynnt sér skoðanir hans.
Það er kunnuglegt stef. Samstarfið er ákveðið fyrst. Skoðanir predikarans eru aukaatriði þar til einhver bendir á þær.
Þessi dæmi gera skoðanir Usmani ekki vitund skárri. Þau sýna hvers vegna við verðum að gera sömu kröfur til allra. Sá sem fordæmir trúarofstæki hjá múslíma ætti ekki að eiga í erfiðleikum með að fordæma það hjá kristnum manni. Og öfugt.
Mælikvarðinn á að vera mannréttindi.
Sömuleiðis megum við ekki gera múslíma almennt ábyrga fyrir skoðunum Usmani, frekar en við gerum allt kristið fólk ábyrgt fyrir orðum Gunnars eða Grahams. Trúað fólk er ekki einsleitur hópur. Margir trúaðir einstaklingar eru öflugir bandamenn í baráttunni gegn ofstæki og fyrir jöfnum réttindum.
En enginn trúarleiðtogi á að njóta friðhelgi fyrir gagnrýni. Eins og ég sagði í ræðu árið 2013: Allir eiga rétt á skoðunum sínum. Enginn á rétt á því að hafa þær í friði fyrir gagnrýni.
Lausnin er veraldlegt samfélag. Samfélag þar sem ríkisvaldið verndar trúfrelsi, tjáningarfrelsi og önnur mannréttindi allra. Þar sem enginn söfnuður nýtur sérstakra forréttinda og hið opinbera greiðir ekki fyrir rekstur trúarbragða. Þar sem lög eru mótuð með hagsmuni og réttindi fólks að leiðarljósi og allir mega gagnrýna þær hugmyndir sem þeim er ætlað að lifa eftir.
Okkar hlutverk er að benda á óréttlæti, mótmæla hatri og standa með þeim sem verða fyrir því. Við eigum að gera það af sömu festu hvort sem predikarinn vitnar í Kóraninn eða Biblíuna.
Trúarofstæki er alltaf hættulegt. Sama hvaða búning það klæðist.



