Hoppa í efni

Að verja lýðræðið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.10.2026

Réttsýnt fólk hlýtur að geta fagnað því að vinstrimaðurinn Luiz Inácio Lula da Silva hafi sigrað Flávio Bolsonaro, son Jairs Bolsonaro, í forsetakosningunum í Brasilíu. Lula hlaut um 51,8 prósent atkvæða og tryggði sér þar með fjórða kjörtímabilið sem forseti.

Flávio hefur hins vegar neitað að viðurkenna ósigurinn og krafist þess að kosningarnar verði ógiltar. Það er áhyggjuefni þegar frambjóðendur virðast aðeins geta sætt sig við lýðræðislegar kosningar ef þeir vinna þær sjálfir.

Lula er auðvitað ekki fullkominn og sigur hans gerir hann ekki hafinn yfir gagnrýni. En maður þarf ekki að vera sammála honum um allt til að fagna ósigri öfgahægrisins.

Fyrir mér snýst þetta um meira en hægri og vinstri. Þetta snýst um að standa gegn fasisma og verja lýðræðið. Ég fagna þessum úrslitum.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Sjá einnig á Facebook

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (835) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.