Opinberar stofnanir greiði námslán starfsmanna sem eru í störfum sem „krefjast“ háskólamenntunnar. Miðað skal við hefðbundin námslán hjá fólki sem hefur ekki haft tök á því að vinna með skóla eða lifa á fjölskyldu sinni meðan það er í námi. Þessi greiðsla bætist ofan á laun og reiknast sem bónus til handa opinberum starfsmönnum (sem yfirleitt eru með lægri laun en starfsmenn í einkageiranum).
Skuldi viðkomandi starfsmaður ekki námslán fær hann samsvarandi upphæð greidda í peningum eða sem aukaframlag í viðbótarlífeyrissjóð.
Það getur varla talist sanngjarnt að „kaupaukinn“ sem fólk fær fyrir háskólagráðurnar sínar hjá hinu opinbera dugi vart fyrir mánaðarlegum afborgunum námslána.
Aðrar greinar um menntamál: