Hoppa í efni

20 þúsund vilja ekki lækka veiðigjöld

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.06.2013

Nú þegar undirskriftarsöfnun gegn lækkun veiðigjalda hefur staðið yfir í aðeins tvo sólarhringa hafa 20 þúsund manns þegar skrifað undir (kl. 16:00). Ég er sannfærður um að fleiri eigi eftir að bætast í hópinn. Ljóst er að myndast hefur „gjá milli þings og þjóðar“ um mál sem forsetinn sjálfur hefur opinberlega sagt að eðlilegt sé „að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu ef að einhver hluti þjóðarinnar telur það mikilvægt.“

Nú er bara að spýta í lófanna og fá enn fleiri til að skrifa undir áskorun til forsetans. Áskorun sem hann getur ekki annað en brugðist við án þess að vera í mótsögn við sjálfan sig.

Hlustum nú á forsetann og skrifum undir hér:
http://www.petitions24.com/obreytt_veidigjald

forsetinn og auðlindin

Tengt:

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Guðmundur Sverrisson 19. júní 2013 · á Facebook

    Skrifið umdir ef þið viljið fá að greiða atkvæði um þetta miklvæga mál.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (856) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.