Hoppa í efni

Lán með veðum í lottómiðum?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.08.2009

Á hverjum degi les maður fréttir af því að "útrásarvíkingar" og aðrir góðborgarar hafi fengið hundruð og jafnvel þúsund milljónir að láni hjá bönkum fyrir hlutabréfakaupum þar sem einu veðin (þ.e. eina trygging bankanna sem lána) eru í sjálfum bréfunum sem á að kaupa. Nú er ég bara fátækur og fávís iðjuþjálfi sem skilur ekki svona lánastarfsemi. Fyrir mér hljómar þetta eins og að fara út í banka og biðja um 300 milljón króna lán fyrir lottómiðakaupum þar sem einu veðin eru í lottómiðunum sjálfum.

Ef ég vinn í lottó (hlutabréfin sem ég kaupi hækka í verði) get ég borgað bankanum, ef ekki má hann eiga lottómiðana (hlutabréfin) sem vitaskuld eru verðlausir. Nú eru eflaust meiri líkur á því að græða á hlutabréfum en lottómiðum en það breytir því ekki hversu kjánaleg ofangreind lánastarfsemi er. Hvaða áhættu tekur lántakandinn? Svör óskast.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (848) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.