Hoppa í efni

Um efnahagsböðla

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.08.2009

Nýverið las ég tvær bækur eftir John Perkins um efnahagsböðla (Economic Hit Men). Bækurnar heita „Confessions of an Economic Hit Man“ og „The Secret History of the American Empire: The Truth About Economic Hit Men, Jackals, and How to Change the World“. Báðar þessar bækur hafa fengið nokkra umfjöllun í fjölmiðlum og á netinu, sérstaklega sú fyrri.

Af einhverjum ástæðum hafa bækur Perkins fengið óverðskuldað á sig hinn illræmda samsæriskenningarstimpil. Bækur Perkins fjalla ekki um samsæri leynisamfélaga gegn blásaklausum almúganum. Í bókum sínum bendir Perkins á hvernig hagsmunir stórfyrirtækja og stjórnmálamanna (sem oft eru nátengdir stórfyrirtækjum) eiga sjaldnast samleið með hagsmunum almennings. Stórveldi og stórfyrirtæki hafa arðrænt og farið illa með fátækt fólk, svo vægt sé til orða tekið,  víðs vegar um heiminn. Oft með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og annarra sambærilegra stofnanna.

Ég hvet sem flesta til að lesa þessar bækur, sérstaklega stjórnmálamenn sem hafa oftrú á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og stórfyrirtækjum.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.