Hoppa í efni

Alkasamfélagið

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.08.2009

Fyrir nokkrum dögum las ég bókina Alkasamfélagið eftir Orra Harðarson. Þetta er hressandi og bráðskemmtileg bók þar sem Orri gagnrýnir harðlega hugmyndafræði og áfengismeðferð AA-samtakanna. Meðferð sem hann gekkst undir sjálfur árum saman. Orri er oft ansi óvæginn í gagnrýni sinni. Þannig gengur hann svo langt að kalla AA-samtökin trúarkölt sem berjist gegn allri skynsemi þegar kemur að áfengismeðferð. Orri fjallar um bókstafstrúarlegan uppruna AA og vægast sagt skuggalega fortíð stofnenda samtakanna. Hann bendir réttilega á að þátttaka í AA sé EKKI besta leiðin til að verða edrú og hvað þá sú eina (eins og margoft hefur verið haldið fram).

Bók Orra er fyrir alla þá sem vilja fræðast um áfengismeðferð almennt, uppruna AA-samtakanna og síðast en ekki síst lesa skemmtilegan texta. Ég hló margoft upphátt við lestur Alkasamfélagsins. Þessi bók er alls ekki fyrir sannfærða AA sinna sem telja sig hafa fundið sannleikann (með stóru S-i) í samtökunum. Hinir síðastnefndu ættu að halda áfram að einbeita sér við að lesa AA-bókina.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Helga Óskarsdóttir 28. ágúst 2009 · á Facebook

    AA býður ekki upp á meðferð og hefur aldrei gert 😀

  2. Hafdís 7. september 2009

    ...ég er smá forvitin...benti Orri á aðrar leiðir sem gætu mögulega komið í staðinn fyrir AA-samtökin..?? Eða þarf ég bara að lesa bókina ;)? Er bara að pæla af því ég man ekki eftir því að hafa heyrt talað um annað en þessar hefðbundnu meðferðir (SÁÁ) annars vegar og AA-samtökin hins vegar...

  3. Sigurður Hólm Gunnarsson 7. september 2009

    Það er margt í boði. Helst er þó mælt með einhvers konar hugrænni atferlismeðferð og/eða lyfjameðferð.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.