Hoppa í efni

Uppbyggileg umræða um einelti

Sigurður Hólm Gunnarsson | 18.09.2013

Ég hef mikinn áhuga á því að taka þátt í uppbyggilegri og gagnlegri umræðu um einelti í skólum. Þá er ekki nóg að fjalla bara um afleiðingar eineltis sem vissulega geta verið hræðilegar. Það er heldur ekki gagnlegt að eyða miklu púðri í að finna sökudólga. Mikilvægast af öllu er að finna lausnir. Hvað er hægt að gera til að draga úr einelti?

Fyrir nokkru lagði ég fram nokkrar tillögur um hvernig hægt er að bæta skólakerfið, jafnvel bylta því (sjá: Byltum skólaumhverfi sem hvetur til eineltis). Viðbrögðin hafa glatt mig mikið. Skólafólk (kennarar, námsráðgjafar), stjórnmálamenn, fjölmiðlar, foreldrar, nemendur, fyrrum samnemendur mínir og aðrir hafa haft samband og fagnað umræðunni.

Ef þú, lesandi góður, ert með uppbyggilegar og framkvæmanlegar hugmyndir um það hvernig hægt er að draga úr einelti í skólum máttu senda mér tölvupóst eða skrifa athugasemdir hér fyrir neðan.

Sjá nánar:

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Haukur Arnþórsson 18. september 2013 · á Facebook

    Ég var í evrópsku rannsóknarverkefni um net einelti fyrir fáum árum og gerði þá þennan útvarpsþátt. Ég held að hann sé enn góður og tímabær og vona að það sé ekki bara dómgreindarleysi. Kveðja/Haukur Arnþórsson
    http://podcast.ruv.is/ekkert_er_eins_og_var/2010.04.29.mp3

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Einelti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.