Hoppa í efni

Ungir róttæklingar bjarga heiminum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 31.07.2007

Það er komið að því. Árlegur dagur hneykslunar og vandlætingar er runninn upp hjá Ungum Sjálfstæðismönnum. Þessir róttæklingar láta ekki fátækt, félagsmál eða styrjaldarbrölt hækka í sér blóðþrýstinginn, en þegar kemur að opinberum upplýsingum um skattgreiðslur Íslendinga missa þeir þolinmæðina. Hingað og ekki lengra. Fyrir nokkrum árum hlekkjuðu þeir sig við skítug skattaskjöl en nú hafa þeir fengið sig fullsadda á yfirgangi yfirvalda. Þeir hafa nú mætt með gestabók niður á tollstofu til að mótmæla óréttlætinu. Hvar værum við án þessara róttæklinga? Líklegast á lista hinna viljugu þjóða fylgjandi stríðinu í Írak...


Sjá nánar:
Ungir sjálfstæðismenn leggja fram gestabók hjá tollstjóra
(www.visir.is)

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Hulda Katrín 3. ágúst 2007

    Nákvæmlega það sem ég vildi sagt hafa!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.