Hoppa í efni

Ungir jafnaðarmenn afhenda þingmönnum víxla

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.04.2002

,,Stjórn Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík afhenti í dag öllum formönnum þingflokkanna víxil að upphæð 69.862 – kr. Sama upphæð myndi falla á hvern Íslending ef lán DeCode Genetics myndi falla á ríkið. Víxlarnir eru stílaðir á Íslenska erfðagreiningu / DeCode Genetics og útgefandi er Bubbi Kóngur. Stjórn Ungra jafnaðarmanna óskuðu eftir því að formenn þingflokkanna dreifðu víxlunum á þingmenn sína svo þeir gætu sem einstaklingar skrifað undir.


Með þessu vilja Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík benda á þá staðreynd að með ríkisábyrgðinni eru þingmenn að taka gríðarlega áhættu með fé skattgreiðenda. Stjórn Ungra jafnaðarmanna hefur einnig bent á að með þessum sértæku aðgerðum ríkisstjórnarinnar er verið að hygla einu fyrirtæki á frjálsum samkeppnismarkaði umfram önnur."

Það er góður baráttuandi hjá Ungum jafnaðarmönnum þessa dagana!

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.