Hoppa í efni

Um afstæðishyggju og trúboð í skólum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.07.2011

Bjarni Karlsson sóknarprestur hefur skrifað enn eina greinina til að kvarta yfir tillögum sem fjalla um samskipti skóla og trúfélaga í borginni. Ég fullyrði að hann setur engin ný gagnleg rök fram í grein sinni og því óþarfi að svara henni efnislega. (Þeir sem eru áhugasamir um efnið geta skoðað greinar um skóla og trú hér).

Það sem vakti athygli mína í nýjustu grein Bjarna, og ég vil fjalla um, er daður hans við afstæðishyggju. Virðist hann vera þeirrar skoðunar að allar hugmyndir og skoðanir séu jafnar og því geti skólakerfið ekki gert neinar kröfur til þeirra sem eiga aðild að skólastarfi. Í grunnskólana eiga allir „ábyrgir“ aðilar að vera velkomnir með „sín gildi og skilaboð, gefa innsýn í list sína, heimsmynd, þekkingu og ástríðu sína á öllum mögulegum sviðum.„

Í grein sinni vill Bjarni benda á þá „alvarlegu rökvillu sem fólgin er í hugmyndinni um hlutlausan, ógildishlaðinn vettvang í skólum borgarinnar“. Hann segir að það sé „almenn félagsvísindaleg vitneskja að hvert félag og stofnun hefur sín gildi, meðvituð og ómeðvituð“ og svo segir hann að „[h]ver persóna ber með sér sinn skilning á heiminum og ber vitni þeirri heimsmynd sem hún hefur eignast.“

Umrædd grein er ágætt dæmi um afstæðishyggju. Hugmyndafræði sem getur ekki gengið upp og er vægast sagt siðferðilega vafasöm. Þeir sem aðhyllast afstæðishyggju geta ekki gagnrýnt eða dæmt neitt. Ekki einu sinni þá sem gagnrýna afstæðishyggju. Enda er hver persóna með sinn „skilning á heiminum“ og því hrokafullt og jafnvel rökleysa að segja að skilningur einnar manneskju sé eitthvað ómerkilegri en skilningur annarra.

Því miður er afstæðishyggja nokkuð algeng hjá ákveðnum hóp vinstrimanna sem berst fyrir umburðarlyndi og mannréttindum „jaðarsettra“ hópa. Ekki vegna þess að það sé beinlínis siðferðilega rangt* að mismuna fólki, heldur vegna þess að allar skoðanir, hneigðir og athafnir eru jafnar. Ekkert er í raun betra en annað, bara öðruvísi. Umburðarlyndi byggt á menningarlegri afstæðishyggju er stórhættulegt.

Þeir sem ganga hvað lengst í afstæðishyggjunni neita að taka afstöðu til ýmissa siðferðisspurninga, einfaldlega vegna þess að þeir telja að það sé ekki hægt. Það er til að mynda ómögulegt, í það minnsta vafasamt, að gagnrýna foreldra sem berja börnin sín ef slíkt hefur tíðkast í æsku þeirra eða heimalandi. Að sama skapi er ekki hægt að setja út á fólk frá öðrum menningarheimum sem er með haturs- og ofbeldisfullar trúar- eða stjórnmálaskoðanir. Allt er jú afstætt.

Að lokum vil ég taka fram að þessi grein er bara minn skilningur byggður á þeirri heimsmynd sem ég hef eignast. Öll gagnrýni verður túlkuð sem smættun, jaðarsetning og sem tákngerving valdatengsla.

*Skilgreining á hvað er siðferðilega rétt og rangt er efni í aðra grein. Í stuttu máli tel ég að allt það sem valdi óþarfa sársauka, þjáningu, óhamingju o.s.frv. hjá einstaklingum sé siðferðilega rangt.

 

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Vésteinn Valgarðsson 18. júlí 2011

    Sú þversögn fer vonandi ekki framhjá neinum, að á meðan Bjarni talar afstæðishyggju með öðru munnvikinu, talar hann um "ábyrgt" fólk út um hitt. Eftir hverju á að meta það, hvort fólk er ábyrgt eða ekki? Er það yfirhöfuð hægt?

    Það er að vissu leyti fyndið hvað menn fara í miklar bóndabeygjur þegar þeir reyna að verja sértæk forréttindi sín með því að búa til einhverjar "almennar" reglur.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.