Þetta er mjög skýrt en teygjanlegt…
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að í nóvember geti fólk séð hversu mikið verðtryggð lán þeirra verða felld niður.“
Sjá: http://www.ruv.is/frett/upphaedir-leidrettinga-ljosar-i-november
„Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag að hann væri ekkert sérstaklega vongóður um að það takist að kynna endanlegar tillögur um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna fyrir jól.“
Sjá: http://www.ruv.is/frett/ekki-vongodur-um-tillogur-fyrir-jol
Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
Það er merkilegt að í kosningabaráttunni lá þetta algerlega ljóst fyrir hjá Sigmundi Davíð og Framsókn hvað ætti að gera fyrir skuldavanda heimilanna. Framsókn komst til valda út það hversu einfalt og skýrt þetta leit út hjá þeim. Fólk sá fyrir sér feitar endurgreiðslur vegna lána sinna og nú eru þeir að tala um að það sé verið að vinna í hugmyndunum. Sem sagt verið að leit leiða til að bjarga sér og innistæðulausum loforðum sínum fyrir horn. Einhver mun þurfa að borga fyrir þetta.



