Kæri Árni Páll.
Í þættinum Mín Skoðun með Mikael Torfasyni í gær sagðist þú vera á móti aðskilnaði ríkis og kirkju. Þessi yfirlýsing þín hryggir mig því ég tel að ríkiskirkja og öll mismunun vegna trúar- eða lífsskoðana geti ómögulega samræmst jafnaðarstefnunni. Stefnu sem mér þykir mjög vænt um.
Ég veit að þú ert trúaður og ert sjálfur í Þjóðkirkjunni. Trú þína virði ég að sjálfsögðu auk þess sem ég skil ágætlega að þér þyki vænt um þína kirkju.
Það sem ég get ómögulega skilið er að þú teljir að það sé í lagi að hið opinbera mismuni fólki þegar kemur að trúarbrögðum. Slík mismunun er sjálfgefin á meðan á Íslandi er starfrækt sérstök Þjóðkirkja sem fær sérstakan fjárhagslegan stuðning frá hinu opinbera og nýtur sérstakrar verndar, umfram aðrar lífsskoðanir í almennum lögum og í stjórnarskrá.
Snýst um réttlæti ekki trú
Fyrir mér er enginn grundvallar munur á því að mismuna fólki þegar kemur að trúarbrögðum og lífsskoðunum annars vegar og að mismuna fólki vegna kyns, kynferðis, fötlunar, litarhafts eða stöðu að öðru leyti hins vegar.
Mismunun er mismunun og frjálslyndir jafnaðarmenn eiga að berjast gegn mismunun á öllum sviðum.
Krafan um aðskilnað ríkis og kirkju snýst um réttlæti en ekki trúarskoðanir.
Fyrir stuttu benti ég Brynjari Níelssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem einnig styður Þjóðkirkjuna, á að algengustu rökin fyrir tilveru sérstakrar Þjóðkirkju standast enga skoðun. (Sjá nánar: Nei Brynjar Níelsson, Þjóðkirkjan er ekki fyrir alla!)
Ég vil freista þess að sannfæra þig um hið sama. Stuðningur minn, og margra annarra frjálslyndra jafnaðarmanna, við Samfylkinguna getur verið í hættu ef formaðurinn er beinlínis á móti fullu trúfrelsi á Íslandi. Það þykir mér leitt enda stendur jafnaðarhugsjónin mér nærri og ég hef hingað til talið að Samfylkingin hafi mikilvægu hlutverki að gegna í íslenskum stjórnmálum.
Í Minni skoðun sagðir þú:
„Ég held það hafi skilað þjóðinni miklu að hafa þetta samband kirkju og kristni í gegnum aldirnar. Ég held að það þurfi að viðurkenna það að Þjóðkirkjan er sérstök stofnun og það eru sérstök rök sem mæla með þessari samfylgd kirkju og ríkis“
og
„Við erum öll sprottin úr hugmyndaheimi sem sameinar okkur og það er mikilvægt að við höldum utan um hann.“
Þetta er einfaldlega ekki rétt. Hugmyndaheimur kristinnar trúar sameinar ekki alla Íslendinga af þeirri einföldu ástæðu að við erum ekki öll kristin. Að auki gengur afstaða Þjóðkirkjunnar í ýmsum málum þvert gegn hugmyndum margra um almenn mannréttindi. Má þar nefna afstöðu kirkjunnar til hinsegin fólks eða til þeirra sem aðhyllast engin trúarbrögð.
Þjóðkirkjan er nefnilega alls ekki fyrir alla eins margir hafa reynt að halda fram (Sjá nánar: Biskupinn bullar í Fréttablaðinu).
Ýmsir talsmenn Þjóðkirkjunnar hafa beinlínis talað gegn lífsskoðunum annarra Íslendinga og það á (óvenju háum) launum frá hinu opinbera. Þjónar Þjóðkirkjunnar hafa reglulega komið fram í fjölmiðlum til að benda á að trúleysingjar séu siðlausir, að þeir ógni mannlegu samfélagi auk þess sem þeir eru jafnvel bornir saman við ógnarstjórnir kommúnismans og nasismans. Slíkur málflutningur er ekki viðeigandi frá kirkju sem kennir sig við þjóðina. (Sjá nánar: Opinber starfsmaður bendlar trúleysingja við ógnarstjórn Stalíns og Fordómar og fáviska ógna mannlegu samfélagi)
Afstaða Þjóðkirkjunnar til hinsegin fólks er því miður ekki til fyrirmyndar heldur. Þjóðkirkjupresta ráða því sjálfir hvort þeir gefa saman fólk af sama kyni, sem þó má gifta sig samkvæmt lögum. Þar að auki tekur hin stjórnarskrárverndað Þjóðkirkja þátt í samstarfi við ýmsar hreyfingar, innlendar sem erlendar, sem breiða reglulega út hatursboðskap gagnvart samkynhneigðum. (Sjá nánar: Má fólk ekki hafa skoðanir?)
Ekki má svo gleyma því að Þjóðkirkjan hefur með „samþykktum um innri málefni þjóðkirkjunnar“ nánast úthýst þeim sem ekki játa kristna trú. Í þeim segir:
„Ekki skal nota kirkju til annarra athafna en þeirra sem teljast samrýmast tilgangi hennar og stöðu sem vígðs helgidóms þjóðkirkjunnar, svo sem borgaralegra athafna eða athafna á vegum annarra trúfélaga en kristinna.“
Það er semsagt í lagi að halda veraldlega tónleika og bingó í kirkjum (sem fjármagnaðar eru með almannafé) en ómögulegt er að leyfa fólki að halda athafnir til að kveðja ástvini eða leyfa pörum að ganga í hjónaband í kirkjum landsins nema athöfnin fari fram í nafni trúar á Jesú Krist. Slík afstaða væri auðvitað í lagi ef að kirkjan fjármagnaði sig sjálf, kallaði sig ekki Þjóðkirkju og nyti ekki sérstakrar verndar umfram aðra í stjórnarskrá.
Samræmist ekki jafnaðarstefnunni
Ég vona, Árni Páll, að þú sjáir að stuðningur við Þjóðkirkju samræmist ekki hugmyndum jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Tilvist ríkiskirkju stríðir beinlínis gegn trúfrelsinu. Þjóðkirkja sem fær meiri fjárhagslegan og lagalegan stuðning frá hinu opinbera en aðrir samræmist að sama skapi varla hugmyndum um jafnrétti. Þegar þjónar sömu kirkju tala og berjast stundum gegn réttindum annarra er varla hægt að segja að hún stuðli að bræðralagi heldur.
Mundu að afstaða til Þjóðkirkju hefur ekkert með trúarskoðanir að gera heldur réttlæti. Krafan um aðskilnað ríkis og kirkju er krafa um jafnrétti og trúfrelsi. Krafa um sérréttindi einnar kirkju, sem þjónar ekki öllum, er barátta fyrir sérhagsmunum.
Þar sem jafnaðarmenn berjast venjulega fyrir almannahagsmunum en gegn sérhagsmunum finnst mér eindreginn stuðningur formanns jafnaðarmannaflokks við Þjóðkirkju skjóta skökku við.
Ég hvet þig því hér með til að endurskoða afstöðu þína.
Sigurður Hólm Gunnarsson
Frjálslyndur jafnaðarmaður
Skoða 7 athugasemdirFela athugasemdir
Maður sem ver útbreiðslu fornaldar hindurvitna meðal barna og það á vegum ríkisvalds er í mínum huga siðblint fyrirbrigði og ég tek fram að ég bera nákvæmlga enga virðingu fyrir hans trú, heldur fyrirlít hana og ömurlegt að sjá enn einu sinni hvað prestsonur virðist yfirleitt ofurseldur hindurvitnum föðursins. Ég hef óttast að þessi prestsonur væri líkur hinum og vil hér með votta mitt dýpsta vantraust á hans dómgreind.
Ákaflega vel orðað og segir allt sem segja þarf.
Mikið til í þessu: "Ég vona, Árni Páll, að þú sjáir að stuðningur við Þjóðkirkju samræmist ekki hugmyndum jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti og bræðralag."
Ég hef lesið 10 sinnum meiri guðfræði en nokkur prestur á Íslandi því ég fékk raunverulegan áhuga á því að finna út hver guð kristinna manna væri og hvaðan. Niðurstaðan er sú að guð gamla testamentisins er gyðingleg útgáfa af höfuðgoði Föníka, EL að nafni. EL var nafn innfæddra yfir rómverska guðinn Júpíter og er einnig nafn það sem er að finna í biblíunni enda er hebreska fönikísk mállýska og gyðingar klikkaðir palestínumenn sem hafa yndi af bróðurmorðum. Grikkir kölluðu hann Seif, Egyptar Amen og forfeður okkar Óðinn. Gyðingar breyttu síðan nafninu í Yahweh þegar þeir urðu endanlega eingyðistrúar. 92% af texta nýja testamentisins er að finna í eldri gyðinglegum, rómverskum, grískum, persneskum, egypskum og súmmerskum hetjugoðsögnum enda ber saga frelsarans 22 merki af þeim 24 sem fræðimenn telja einkenna hetjugoðsögn fornaldar. Engar heimildir um tilvist Jesú aðrar en nýja testamentið finnast og engir frumtextar frá fyrstu tveimur öldum tímatals vors eru til en hinsvegar hafa…
Þú verður að fyrirgefa Matthías að ég vissi ekki að þúnværir til og veit ekkert um þig, en ef þú tekur til þín það sem ég sagði um fólk sem dreyfir og ver dreyfingu hrikalegustu hindurvitna meðal varnarlausra barna í milljóna tali kg með stuðningi ríkisvalds þa á allt það sem eg segi um slíkanmglæpalýð við þíg líka. Eg mun ekki skrifa hér meir enda ríkir hér greinilega innantóm vinsældasöfnun og tabú og umræða um meginatriði tabú. Þeir sem ekki geta kallað strkostlegustu glæpi nútímans, svo sem boðun hindurvitna kristni og Islam eru ekki þess virðinað ræða við og ég feginn að vera laus við viðræður við einfeldninga með hverfandi þekkingu og skilning á trúarfyrirbrigðum. Sigurður ber víst virðingu fyrir hvers kyns trú manna, og má því vænta samstöðu hans með satanistum og hvers kyns öðrum og einnig bannað að tala illa um fólk sem stundar mannfórnir, eins og kristnir og islamistar fórna hiklaust andlegu heilbrigði milljóna barna. Ég segj því bless en finn enn dýpri órvæntingu varðandi þe…
Rétt að lokum, að halda því fram að virða beri hvað trúarskoðanir sem er, er auðvitað fullkominn della, raunar fáránlegt ábyrgðarleysi og hentistefna.
Mér finnst að trú snúist um að mannvæða náttúrulögmálin. Búa til vald fyrir útvalda. Er því sammála Magnúsi og félögum mínum í Siðmennt. Stjórnmálamenn eiga og þurfa ekki að tjá sig trúmál.



