Hoppa í efni

Biskupinn bullar í Fréttablaðinu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 30.03.2013

Í Fréttablaðinu í dag sýnist mér að Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, fari með hrein ósannindi. Þar segir hún:

„Ef einhver biður um þjónustu kirkjunnar þá spyrja starfsmenn hennar ekki "Bíddu, ert þú í þjóðkirkjunni? Ert þú kristin manneskja" Við þjónum bara fólki alveg sama í hvaða trúfélagi það er. Þessi tenging er svo skýr í litlum samfélögum en ekki eins hér í Reykjavík. Þess vegna er umræða um hvort samstarf eigi að vera milli kirkju og skóla miklu meiri hér í þéttbýlinu er á smærri stöðum“

Nú veit ég til þess að þetta er ekki rétt og hef fjallað um þá staðreynd áður að Þjóðkirkjan og einstaka þjónar hennar hafa vísað fólki frá vegna trúarskoðana þeirra sem til kirkjunnar hafa leitað. Ég veit að prestar hafa neitað fólki sem á um sárt að binda um þjónustu vegna þess að fólkið taldi sig ekki vera trúað. Ég veit að einstaka prestar hafa neitað samkynhneigðum um þjónustu og ég veit að í „innri samþykktum Þjóðkirkjunnar“ sjálfrar segir í 13. gr. um helgihald:

„Ekki skal nota kirkju til annarra athafna en þeirra sem teljast samrýmast tilgangi hennar og stöðu sem vígðs helgidóms þjóðkirkjunnar, svo sem borgaralegra athafna eða athafna á vegum annarra trúfélaga en kristinna.“

Ég veit að Þjóðkirkjunni er mikið í mun að réttlæta sérstöðu sína með því að hún þjóni öllum. Vandamálið er að hún gerir það ekki og því er sérstök staða og vernd Þjóðkirkjunnar algerlega óréttlætanleg með öllu.

Gleðilega páska annars.

Sjá nánar:

Skoða 8 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Valgarður Guðjónsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Það er líka allt í lagi að hafa í huga að biskup talar gegn betri vitun, henni var bent á þessa samþykkt kirkjunnar á fundi í Iðnó síðasta haust - kom þá reyndar af fjöllum, en veit betur núna

  2. Sigurdur Holm Gunnarsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Hvað kallast það þegar fólk fer vísvitandi með rangt mál?

  3. Rúna Vala Þorgrímsdóttir 30. mars 2013 · á Facebook

    Ég fór einu sinni í útför að Ásatrúarsið, sem haldin var í kirkju... en æjá, það var í Fríkirkjunni!

  4. Guðlaugur Ævar Hilmarsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Nú verður Biskubinn lagður í einelti af Vantrú. Búnir að tapa fyrir Bjarna Randver. http://grefillinn.com/vantru-gerir-hreint-fyrir-sinum-dyrum

  5. Sigurdur Holm Gunnarsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Viðtal við mig í Harmageddon þar sem þessi grein er rædd. http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP17820

  6. Kjartan Eggertsson 30. mars 2013 · á Facebook

    "Nú veit ég til þess að þetta er ekki rétt". Viltu ekki bara vera málefnalegur og segja frá atvikunum, Sigurður Hólm?

  7. Baldur Sigurðsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Við bræður fengum dómkirkjuna léða fyrir borgaralega útför föður okkar árið 2005. Sjálfsagt mál var að fá húsnæðið lánað prestlaust. "Þjóðkirkjan" er ekki eitthvað eitt, heldur margt, fer eftir því við hvern maður talar.

  8. Svanur Sigurbjörnsson 30. mars 2013 · á Facebook

    Við í Siðmennt urðum fyrst vör við þessa útilokun Þjóðkirkjunnar í fyrra. Það hafði svo sem ekki mikið reynt á umburðarlyndi og náungakærleik Þjóðkirkjunnar gagnvart trúlausum í leit að stað fyrir útför sína eða ættingja fyrir það utan tvö skipti og það var í Garðakirkju og Háteigskirkju sem fólk fékk inni. Í fyrrasumar kom það svo óvænt upp að félaga úr Siðmennt var neitað um útför frá Garðakirkju (Sr. Jóna Hrönn Boladóttir) og síðan var fjölskyldu manns (sem sat lengi í listaráði Þjóðkirkjunar) neitað um að hafa veraldlega útför í Neskirkju (Örn Bárður Jónsson). Þannig var manni sem gat horft út yfir trúarbrögð í starfi sínu í þágu lista neitað af kristinni kirkju. Síðan var konu neitað af Kópavogskirkju mánuði síðar. Þetta gátu þessir prestar gert og áttu að gera samkvæmt innri samþykktum Þjóðkirkjunnar. Hún er því alls ekki opin "og ekki spurt trúar" eins og biskupinn lýgur til um. Það er ekkert flóknara en þetta.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.