Hoppa í efni

Það er ekki það sama Jón og séra Örn Bárður Jónsson

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.01.2011

Örn Bárður Jónsson brosandi.Starfsmaður á leikskóla sem skrifaði í hálfkæringi á Facebook síðu sína að hann vildi kyrkja barn var umsvifalaust rekinn. Sviðsstjóri hjá Eflingu segir uppsagnir vegna slíkra ummæla vera algengar.  Aðallega er það fólk sem sinnir börnum og öldruðum sem fær að fjúka fyrir ósæmileg ummæli um skjólstæðinga sína. Þegar slík orð eru látin falla er erfitt að „grípa til varna“ segir sviðsstjórinn.

Örn Bárður Jónsson, prestur og einn helsti talsmaður Guðs á Íslandi, vísar 15 ára barni sem skrifaði athugasemd á bloggsíðu prestsins á geðdeild Landspítalans. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Örn Bárður sýnir fólki sem leyfir sér að vera ósammála skoðunum hans rakinn dónaskap og óvirðingu.

Örn Bárður verður þó aldrei rekinn. Fær ekki einu sinni áminningu. Líklegast fær hann bara „high five“ frá Biskupsstofu fyrir að tækla syndugar gagnrýnisraddir.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Þór 26. janúar 2011

    Maðurinn hefur sýnt með þessu að hann gengur ekki heill til skógar. Það er eitthvað mikið að.
    Pilturinn sendir inn athugasemd við blogg frá Erni og fær þetta í andlitið, hrokafullt og hálf ógeðfelt "svar".
     
    Og þessi maður á ofurlaunum hjá ríkinu ... ríkisstarfsmaðurinn ... hvað ætli verði gert í málinu? hvað yrði gert eins og þú segir, ef hann ynni á leikskóla, eða grunnskóla. Hann væri ekki í vinnu lengur.
    Skiptir engu máli hvað þessir gaukar gera?

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.