Hoppa í efni

Stjórnarskrármálið í höfn!

Sigurður Hólm Gunnarsson | 26.03.2013

Fregnir herma að Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Bjarna Ben, sé tilbúinn að samþykkja drög að nýrri stjórnarskrá svo lengi sem 114% kosningabærra manna staðfesti drögin í þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin verður í blíðskaparveðri undir tvöföldum regnboga þann 30. febrúar næstkomandi.

Samkvæmt sömu heimildum strandar málið nú helst á Framsóknarflokknum og þá sérstaklega Vígdísi Hauksdóttur sem óttast að án strangari skilyrða sé stærðfræðilega mögulegt koma nýrri stjórnarskrá í gegn. Einnig telur hún töluverð hættu á því að, án breytinga, verði leyfilegt samkvæmt stjórnarskrá að nota íslenska krónu til að aðstoða fátækt fólk „í útlöndum“. Formaður Bjartrar Framtíðar er bjartsýnn á að hægt verða leysa málið fyrir fyrrgreinda dagsetningu.

Ekki náðist í Árna Pál en talið er víst að hann vilji reyna að ná eitthvað betri samningum.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Ingi Karl Sigríðarson 26. mars 2013 · á Facebook

    nei sko þú hafðir rétt fyrir þér og fyrir það áttu skilið 500 kall en af honum eru tekknir skattar 499kr og nýtingar gjald 15450kr svo eftir stendur skuld sem er ekki svo slæmt og það allt í boði 4flokksins sem er bara að gera þetta í þína þáu!!!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Hæðni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.