Hoppa í efni

Stjórnarskrárbrot á Íslandi?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.09.2002

Ungir jafnaðarmenn hafa nú gefið út áhugavert rit sem nefnist ,,Stjórnarskrárbrot á Íslandi?" en ég tók þátt í að semja þetta rit þegar ég var enn í Ungum jafnaðarmönnum. Ég átti helst þátt í að semja kaflann um trúfrelsi:

Trúfélögum mismunað
62. gr. Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum.

Samkvæmt lögum er engum bannað að stunda trú sína hér á landi en á móti kemur að margt í landslögum og í framkvæmd yfirvalda gerir það að verkum að hér er ekki raunverulegt trúfrelsi. Eitt trúfélag hefur sérstaka vernd umfram önnur samkvæmt stjórnarskrá landsins, þeirri sömu stjórnarskrá sem kveður á um að allir eigi að vera jafnir fyrir lögum óháð því hvaða trú þeir aðhyllast.

Óeðlileg fjárhagsleg tengsl eru á milli ríkisvaldsins og þjóðkirkjunnar annars vegar og milli ríkisins og trúarbragða almennt hins vegar. Ríkið greiðir enn laun presta þjóðkirkjunnar og styður þannig starfsemi hennar umfram önnur trúfélög. Almenningi er einnig bannað samkvæmt lögum að vinna á helgidögum þjóðkirkjunnar. Vegna óeðlilegra tengsla ríkis og kirkju er atvinnulífinu settar skorður. Hægt er að nefna margs konar fleiri forréttindi þjóðkirkjunnar en það er ljóst að þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrárinnar þess efnis að allir eigi að vera jafnir fyrir lögum er sú ekki raunin, hvorki í orði né á borði.

Einnig hefði ég viljað sjá minnst á þau stjórnarskrárbrot sem ríki og sveitarfélög hafa framið með því að banna svokallaða einkadansa. En við slíkum yfirlýsingum var vart að búast frá ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks á kosningavetri.

Að öðru leyti er þetta áhugavert og vel unnið plagg!

sjá nánar:
www.politik.is

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.