Hoppa í efni

Stéttaskipting í aðsigi?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.09.1999

Brottfall nýbúa úr framhaldsskólum er allt of hátt eða um 80%. Þetta þýðir að átta af hverjum tíu nýbúum sem hefja nám í framhaldsskólum ljúka því ekki. Þessu ástandi þarf umsvifalaust að breyta ef koma á í veg fyrir að stéttaskipting og kynþáttahatur myndist hér á landi.

Íslendingar eru gjarnir á að lýsa því yfir að kynþáttahatur sé lítið sem ekkert á Íslandi. Engu að síður hefur undirritaður margoft orðið vitni að ummælum og athöfnum sem benda sterklega til annars. Kynþáttahatur hefur vissulega ekki verið eins áberandi hér og það er í mörgum nágrannalöndunum, en þetta kann og mun breytast ef ekki verður brugðist rétt við þeim aðlögunarvanda sem nú steðjar að nýbúum.

Það er afar mikilvægt að nýir Íslendingar fái góða aðstoð við að aðlagast íslensku þjóðfélagi. Ef brottfall nýbúa úr skólum heldur áfram að vera eins hátt og það er nú, er það deginum ljósara að hér mun myndast stéttaskipting þar sem nýbúar eru að jafnaði verr menntaðir og verr launaðir en innfæddir Íslendingar.

Þegar illa árar í þjóðfélaginu verða þeir sem hafa minnsta menntun oft hvað verst úti. Illa menntað fólk er líklegra til þess að vera atvinnulaust og lifa undir fátæktarmörkunum. Ef fólk af erlendu bergi brotið verður hlutfallslega fleira í þessum hóp en innfæddir, eins og ýmislegt bendir til í dag, megum við eiga von á stigmagnandi kynþáttahatri. Sumir munu, því miður, halda því fram að útlendingar séu latir, lifi á kerfinu eða taki vinnuna af innfæddum sem frekar eiga hana skilið og svo framvegis.

Ég vona að yfirvöld geri sér grein fyrir því hve nauðsynlegt það er að bregðast skjótt við fyrrnefndum aðlögunarvanda nýbúa. Það að tryggja góða menntun fyrir alla er ávísun á bjarta framtíð í fjölbreytilegu og skemmtilegu þjóðfélagi þar sem fjölbreytt menningaráhrif fá að njóta sín.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Ég er Íslendingur 6. júlí 2003

    Þeir kalla sig Félag Íslenskra Þjóðernissinna,,, þeir hljóma meira eins og Íslenska Kynþáttahaturs Félagið. Þjóðernissinni og kynþáttahatari er ekki það sama. "Ég er þjóðernissinni", og ég hefði ekkert á móti því að helmingur fólks hér á landi hefði svartan húðlit. Svo lengi sem þetta fólk talar íslensku og heitir íslenskum nöfnum þá eru þetta bara fullgildir íslendingar! Ég bjó sjálfur í danmörku "í útlendingahverfi", og eftir að hafa dvalist þar lengi þá get ég alveg bent á vandamálið, sem er ekki kynþáttalegs eðlis eins og fólk vill halda. Vandamálið er trúarlegs eðlis og skoðanir fólks á lífinu,, þá er ég að tala um það sem er troðið upp í hausinn á þér þegar þú ert að alast upp, í gegnum sjónvarp, útvarp og internetið. Vandamálið í Danmörku er ekki að það séu of mikið af útlendingum, vandamálið er að stór partur þessa útlendinga er af Islamskum uppruna og horfir ekki á annað en arabískar kapalstöðvar, og það sem verra er, er að börnin þeirra horfa á þennan sama fjanda, og birja að mynda sér neikvæðar skoðanir gagnkvart samfélaginu sem þeir búa í því það leifir hluti sem ættu ekki að vera leifðir samkvæmt því sem þeir sáu í imbakassanum.
    Þetta sér maður líka í Bandaríkjunum þar sem svart fólk er bara stimblað sem þjófar.
    AAMverju er verið að múta krökkunum okkar til að fermast til dæmis. AAMverju leifum við þeim ekki að mynda sínar eigin skoðanir án þess að peningar komi þar nálægt! Það sem mér er illa við í þessum heimi er fólk með ranghugmyndir um heiminn, fólk eins og: þessir bavíanar í FÍÞ sem halda að húðlitur fólks endurspeigli skoðanir þess, feministar á Íslandi sem halda því fram að það særi þær að sjá aðra konu alsbera á auglýsingaspjaldi, yeah right það særir mig líka að sjá þennan alspera karlmann í Séð&Heirt-auglýsingunum! Það sem við eigum að standa vörð við er lýðræðið og frelsi okar til að tjá okkur, að verja eitthvern sérstakan kynstofn er bara bull, því sá kynstofn sem mesta hjálp þarf að halda er Mannskepnan, Ég er meðlimur í félagi sem Heitir ThPMumanBrotherhood, við trúum á manninn en ekki guð, Og við viljum að mannskepna lifi að elífu en deiji ekki út,, það er allavega birjunin.......

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.