Hoppa í efni

Smásaga af góðum heiðingja í helvíti

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.05.2013

Einu sinni var uppi „góður maður“. Hann dó. Samkvæmt samferðamönnum var hann ágætis maður og vann góð verk. Hann trúði þó ekki á Guð. Þetta voru mikil mistök því eftir dauðann kom engill og flutti „góða manninn“ til himna þar sem hann var dæmdur af hinum allra heilagasta. Kom þá í ljós að „góði maðurinn“ hafði meðan hann lifði meðal annars horft á fallega konu og hugsað með sér „girnileg þessi!“ Þar með drýgði maðurinn „hór með henni í hjarta sínu.“ (Matt. 5.28). Hann sagði líka óheppilega brandara sem unglingur, óhlýðnaðist foreldrum sínum og gott ef hann fór ekki eitt sinn með málshátt eftir Sverri Stormsker…

1 girnd

 

Eins og gefur að skilja gat hinn alvitri og réttláti Guð ekki gert annað en að bölva „góða manninum“ og sent hann í þann „eilífa eld, sem búinn er djöflinum og árum hans.“ (Matt. 25.41).

Í helvíti mun svo „góði maðurinn“ dvelja í eilífri refsingu.

2 dæmdur

Amen!

Eins gott að ég hef aldrei horft á fallega konu og hugsað: „girnileg þessi!“

Heimildir:

  • Biblían – heilög ritning
  • „Þetta var þitt líf!“ – upplýsingarit J.T.C. (lifdu.org)
  • Saurugar hugsanir heiðingja (skodun.is)
Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Theodór Gunnarsson 21. maí 2013 · á Facebook

    Það ætti að vera bannað að troða svona ógeði inn um bréfalúgur fólks.

  2. Svanur Sigurbjörnsson 21. maí 2013 · á Facebook

    Trúi fólk þessu trúir það því að trúlaust fólk sé illt fólk. Hins vegar munu fordómar trúleysingjans gagnvart þeim bókstafstrúaða sjaldnast ganga lengra en að halda viðkomandi létt heimskan fyrir trúgirnina.

    Hér er setning til umhugsunar á lifdu.is: "Mikilvægt er að hafa í huga að Guð skapaði himinn og jörð með orðum. Biblían er ekki bara einhver bók, heldur skilaboð frá Guði til okkar. Guð krefst þess að við sýnum okkar vilja til þess að eignast eilíft líf með Honum með því að leita eftir Hans vilja í Biblíunni. Biblían er uppspretta Kristinnar trúar og inniheldur leiðbeiningar um hvernig Kristnu fólki ber að fara eftir orði Guðs í lífi sínu."

    Þessi Guð er ári frekur. Hann "krefst þess að við sýnum okkar vilj til þess að eignast eilíft líf með Honum með því að leita eftir Hans vilja í Biblíunni." Með öðru orðum láta af eigin vilja (og hugsun) og fara eftir bókstaf Biblíunnar. Þetta er skelfilegt. Á síðunni "Um okkur" er sagt að þarna sé áhugahópur um Biblíuna á ferðinni en engin…

  3. Snorri Kristins 21. maí 2013 · á Facebook

    Börn ættu að athuga með að spyrja hinnar einföldu spurningar: "Hvernig í andskotanum vitið þið þetta bara? Var eitthvað mennskt vitni að þessum atburðum? Sat einhver við hásæti himnaföðurs og sá hvað skeði? Afhverju er ekki til símavídjó af téðum atburðum? Af því að ekkert af þessu er rétt og þetta er allt saman bölvuð helvítis lygi? Kúl. Fokk off ðen."

  4. Guðrún Hulda Guðmundsdóttir 21. maí 2013 · á Facebook

    Við fengum þetta hérna heim um daginn - ég er að velta fyrir mér hvort allir hafi fengið þetta, eða bara allir utan kristinna trúfélaga eða þá alveg utan trúfélaga? Við erum skráð í annað trúfélag á þessu heimili og ég er að velta fyrir mér hvort þetta lið sé að reyna að hræða mann til að trúa og koma til liðs við þetta félag en þetta hefur þveröfug áhrif á þessum bæ.
    Það ætti að banna að dreyfa svona trúarbæklingum nema þá til þ.eirra sem tilheyra viðeigandi trúfélagi.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.