Hoppa í efni

Skottulækningar í boði Reykjavíkurborgar?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 27.08.2010

Ég rakst á undarlega frétt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: „Ókeypis Bowen meðferð í Vesturbæjarlaug“. Í fréttinni kemur fram að Halla Himintungl*, „menntaður Bowentæknifræðingur“, ætli að bjóða upp á ókeypis Bowen meðferð fyrir gesti Veturbæjarlaugar. Í ítarefni sem fylgir fréttinni segir svo að Bowen tækni „virki vel“ á fólk sem „þjáist af bakverkjum, brjósklosi, mígreni, hnémeiðslum, liðagigt, háls- og herðaverkjum, astma, kvíða, ofvirkni, þunglyndi og svefnleysi.“ Enn fremur eru börn, unglingar og ófrískar konur sérstaklega hvattar til að nýta sér meðferðina.

Vandinn er sá að engar rannsóknir hafa verið birtar í ritrýndum fræðiritum sem sýna fram á þennan stórkostlega lækningarmátt Bowen tækninnar. Þetta er auðvitað ekki tekið fram í umræddri frétt. Enda kannski óþarfi?

Það er gagnrýnivert að skottulækningar séu auglýstar og kynntar með þessum hætti á opinberum vef Reykjavíkurborgar. Sérstaklega þegar börn og unglingar eru hvattir til að nýta sér þessa meðferð. Sem borgari hlýtur maður að geta gert ráð fyrir því að meðferð í boði borgarinnar sé byggð á einhverju öðru en sandi.

* Ég er ekki að grínast. Það skal tekið fram að Halla Himintungl er líka sérfræðingur í tarotlestri, stjörnuspeki, reiki, tunglgöldrum og fleiri ósannreyndum aðferðum.

Tengt efni:
Óhefðbundinn fréttaflutningur (um gagnrýnislausa umfjöllun fjölmiðla um Bowen tækni)


Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Hólmfríður Gestsdótttir 27. ágúst 2010

    Þetta er eiginlega frekar fyndið - Halla himintungl!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.