Hoppa í efni

Skóli og trúarbrögð

Brynjólfur Þór Guðmundsson | 24.03.2000

Það má færa rök fyrir því að án kirkjunnar hefði menntun Íslendinga orðið mun minni og orðið almenn síðar en raunin var. Það breytir því þó ekki að trúarbragðakennsla í grunnskólum er tímaskekkja. Hafi hún þá einhvern tíma átt við sem ég efast reyndar um.


Eru trúarbrögð æskilegt námsefni?
Í grunnskóla var mér kennd kristinfræði (mér finnst reyndar heiðarlegra að segja að það hafi verið stundað kristinboð í þeim skólum sem ég gekk í en látum það liggja á milli hluta) og svo er enn þó kristinfræðin sé að einhverju leyti að þróast út í trúarbragðafræðslu. Ef maður les námskrá og hlustar á málflutning þeirra sem leggja áherslu á hlut trúarbragða er svo að skilja að þetta sé mikilvægur hluti af uppeldi barna. Í trúarbragðafræðslu er leitast við að kenna börnum kristileg gildi (sem er þó að finna í velflestum trúarbrögðum heims) sem eiga að gera þau að góðum og gegnum þjóðfélagsþegnum.

Nú hljómar þetta ekki illa og því kann að virðast skrýtið að maður sem hefur áður lýst því yfir að hann leggi áherslu á uppeldishlutverk skóla leggist gegn þessu. Málið er hins vegar það að ég hef nokkrar efasemdir um gagnsemi kristinfræðslu/trúarbragðafræðslu í þessa veru og stórkostlegar efasemdir um að það sé siðlegt að boða líttþroskuðum börnum ein trúarbrögð öðrum fremur í opinberum skólum.

Betri leiðir
Ef við ætlum að kenna börnum mannasiði í skólum tel ég heppilegra að gera það með því að byggja grunnskólann á heimspekilegum grunni. Það er að segja að leggja áherslu á siðfræði og röksemdafærslu og benda börnum á að gerðir þeirra hafa afleiðingar. Eftir því sem ég kemst næst hafa allar tilraunir með þetta í íslenskum skólum skilað góðum árangri. Þess vegna tel ég þörf á að gera meira í þessu. Vitaskuld kostar það tíma, fé og fyrirhöfn að breyta skólakerfinu en ég tel að þeim tíma, því fé og þeirri fyrirhöfn sé vel varið.

Afnemum trúarbragðakennslu
Fyrir þúsund árum síðan var trúfrelsi afnumið á Íslandi. Í ár er nokkur hundruð milljónum af almannafé varið til að fagna þeim tímamótum. Ég tel að öllu heppilegra væri að minnast þessara tímamóta með því að ákveða að afnema alla trúarbragðakennslu og trúboð í opinberum skólum. Þannig myndum við stíga enn eitt skrefið í þá átt að vinna upp það trúfrelsi sem við bjuggum við fyrir þúsund árum.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Agnar 16. apríl 2004

    Það að læra um öll trúarbrögð eykur þekkingu fólks á högum annarra og verður því meira umburðarlyndi fyrir vikið og minna af fordómum. Hlutir sem allir njóta góðs af!

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 16. apríl 2004

    Auðvitað á að kenna um trúarbrögð. Það sem skiptir máli er að ekki sé stundað trúboð í skólum. Fræðsla og trúboð er vitaskuld ekki það sama. Það sem Brynjólfur er hér aðallega að gagnrýna er það trúboð sem stundum á sér stað í skólum.

    Ítarefni:
    Aðskiljum skóla og kirkju

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Brynjólfur Þór Guðmundsson

Allar greinar höfundar (99) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.