Hoppa í efni

Russell Brand byltingin

Sigurður Hólm Gunnarsson | 25.10.2013

Russell Brand

Viðtalið við Russell Brand, sem fer eins og eldur í sinu um Fésbókina þessa dagana, er hressandi. Þar fjallar hann hispurslaust mikilvæg mál eins og misskiptingu, spillingu og umhverfismál. Ég er sammála honum að kerfið er rotið og víða er illa farið með venjulegt fólk. Hjartanlega sammála! Niðurstaða hans er þó einfeldningsleg, ef ekki hættuleg. Í hnotskurn segir hann: „Ekki kjósa af því að allir stjórnmálamenn eru fífl.“ Það eina sem dugar er „BYLTING“.

Það er skiljanlegt og auðvelt að vera reiður og þreyttur á ástandinu. Það er létt og losandi að segja „Fuck you“ við KERFIÐ. Erfiðara, en gagnlegra, er að taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum. Setja sig inn í málefni líðandi stundar, taka upplýsta afstöðu og leggja svo sitt af mörkum til að gera heiminn betri.

Kerfið er fólk og fólk er kerfið. Við berum öll samábyrgð á því hvernig kerfið, samfélagið okkar, er. Þá skiptir meðal annars miklu máli hvernig við nýtum atkvæði okkar. Það er nefnilega algjört kjaftæði að allir stjórnmálaflokkar séu eins, öll hugmyndafræði sú sama og að allir stjórnmálamenn séu fífl. Sá sem neitar að kjósa er í raun ekki að gera neitt annað en að gefa öðrum vald yfir sér. Það þýðir ekki að sitja heima á kjördag og kvarta svo yfir ömurlegri stefnu stjórnvalda.

Málflutningur Russell Brand minnir mig nokkuð á einræður fólks hér á landi gegn „fjórflokknum“ og á háværar kröfur um „eitthvað annað“. Þessi stanslausi áróður sem gengur út á það að allir stjórnmálaflokkar séu eins er rugl og þessi endalausa krafa um „eitthvað annað“ er ekki gagnleg ef maður hefur ekki hugmynd um hvað þetta „annað“ á að vera. Slík krafa getur reyndar verið hættuleg.

Bylting byggð á reiði og uppgjöf gagnvart lýðræðinu getur nefnilega hæglega leitt til popúlisma, fasisma, einræðis og kúgunar.

Annars mæli ég með viðtalinu eins og áður segir. Það er hressandi:

 

https://www.youtube.com/watch?v=lLYcn3PuTTk

Skoða 6 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Bjarki Sigursveinsson 25. október 2013 · á Facebook

    Það er ágætt að hafa það í huga að Russel Brand er Breti og hans afstaða til kosninga mótast af því. Okkar kerfi er ekki fullkomið en það er hátið við hliðina á þvi sem Bretum er boðið upp á. Langflestir búa í kjördæmum þar sem engin spenna ríkir um úrslitin og atkvæði greidd öðrum en sigurvegaranum hafa ekkert að segja. Svo eru flokkarnir þar líka afskaplega líkir hverjum öðrum, sérstaklega eftir að Verkamannaflokkurinn tók upp "þriðju leið" Tony Blair. Það er beisiklí úr þremur flokkum að velja sem allir eru mjög hallir undir viðskiptalífið.

  2. Hlodver Sigurdsson 25. október 2013 · á Facebook

    Popúlismi og fasismi. Er það ekki einmitt popúlismi og fasismi að aðhafast ekki neitt!

  3. Svanur Sigurbjörnsson 25. október 2013 · á Facebook

    Heyr heyr! Góður að vanda Siggi. 🙂

  4. Benedikt B Sigurðsson 25. október 2013 · á Facebook

    Sæll Siggi, takk fyrir síðast.

    Ég verð að taka undir, að hluta, með Bjarka, og spyrja: Finnst þér að athugasemd þín - um að niðurstaða Russels sé einfeldningsleg - eigi jafn vel við hvar sem er í heiminum, á hvaða tíma sem er í sögunni?

  5. Sigurður Ómar Jònsson 25. október 2013 · á Facebook

    hvað með hugmyndafræði fiskkvótakerfisins? er það siðferðilega rétt að leyfa nokkrum einstaklingum að mala gull á 'okkar' auðlind?hverjir komu kvótanum á og verja hagsmuni elítunar? hvað eru margar skoðarnir í gangi á íslandi endalaust um alla skapaða hluti milli himins og jarðar..allir vita allt og ekkert er gert eða framkvæmt utan að kjósa 'populist' og neo-liberal' flokka yfir hugsandi folk..4 flokka einræðið er hættulegt fyrir alvöru lýðræði..etc..

  6. Kristjan Logason 25. október 2013 · á Facebook

    Er ekki megin inntakið hans nokkuð skiljanlegt . Ekki kjósa nema þú hafir eitthvað að kjósa sem þér lýst á. Með því gagnrýnir hann stofnanamennskuna í atvinnupólitík eins og hún hefur þróast síðastliðin 20 ár og þá gjá sem hefur myndast milli þings og þjóðar. Pólitíkin er atvinnumennska í efri og efri milli stétt og úr tengingu og takti við fólkið. Í englandi og víða í heiminum er þa ðsama uppi á teningnum. En viðtalið er skemmtilega hressilegt þykir mér.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.