Hoppa í efni

Opinberun Brynjars Níelssonar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 28.06.2013

Brynjar og friðhelgi einkalífsinsBrynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Lögmannafélags Íslands, telur að það sé „enginn eðlismunur“ á því að yfirvöld skoði í leyni tölvupósta hjá saklausu fólki og að hið opinbera á Íslandi birti álagningaseðla samkvæmt lögum. Reyndar finnst honum „verra“ að álagningarseðlar séu gerðir opinberir meðal annars af því að í hans tilviki „reynast meiri persónulegar upplýsingar í skattframtalinu en í tölvupóstum.“

Þessi merkilega opinberun kom fram í vægast sagt áhugaverðum rökræðum sem Brynjar tók virkan þátt í um spurningu sem ég varpaði fram á Facebook í gær:

„Af hverju eru margir hægrimenn (líka íslenskir) á því að Snowden sé föðurlandssvikari og að hann eigi að fangelsa? Hefur hægrið ekki reynt að eigna sér frelsið og lítil ríkisafskipti? Ég á mjög erfitt með að skilja af hverju sovéskt eftirlit með almenningi fær svona mikinn stuðning frá hægrimönnum.

Getur einhver hjálpað mér að skilja þetta?“

Að mörgu leyti er ánægjulegt að stjórnarþingmaður taki þátt í umræðu á netinu og svari þannig almennum borgurum eins og mér. Ekki er eins ánægjulegt að verða vitni að ómálefnalegum tilsvörum, hálfgerðum persónuárásum (fyrsta innlegg Brynjars hefst svona: „Þú ert alveg á rangri leið, Sigurður, og það ekki í fyrsta skipti.“) og útúrsnúningi. Ég hef sem dæmi ekki tölu á því hversu oft Brynjar reyndi að eigna mér skoðanir sem ég hef alls ekki.

Fyrir utan að hafa siðferðislega vafasama afstöðu til persónunjósna yfirvalda sætir undrun að þingmaður og lögfræðingur geti ekki rökstutt mál sitt betur og það án þess að snúa út úr og reyna sífellt að gera lítið úr andstæðingum sínum.

Er þetta það besta sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur upp á að bjóða þessa dagana?

Brynjar reyndi að útskýra rökleysi sitt með þeim rökum að erfitt væri að eiga langar rökræður á Facebook. Þetta sagði hann eftir að hafa rökrætt stanslaust í um tvo klukkutíma.

Það verður æsispennandi að fylgjast með stuttum svörum Brynjars á komandi þingi. Varla fær hann mikið betra ráðrúm til að vanda svör sín á þeim vettvangi.

Umræðuna í held má lesa með því að smella hér.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Einar Karl Friðriksson 28. júní 2013 · á Facebook

    Brynjar er náttúrulega "loose canon" og lætur allt flakka, nýtur þess að ögra. En ég hefði gjarnan vilja sjá orðræðu hans á örlítið vitsmunalegra hærra plani. Kannski er þetta einhver lærður hroki eftir áratugi málfutning, að bara rífa kjaft án þess að leggja sig fram.

    Þessi ferkantaða nálgun á uppljóstranir Snowden minnir helst á hvernig hægrimenn töluðu sumir í kalda stríðinu, fyrirgáfu Bandaríkjamönnum allt, því þeir voru "góðu gæjarnir", okkar megin.

    http://www.nytimes.com/.../opinion/the-criminal-nsa.html...&

  2. Bergljót Aðalsteinsdóttir 28. júní 2013 · á Facebook

    Hægri menn eru tækifærisinnar Frelsið er bara eitthvað sem er notað á tyllidögum (landsfundi) og fyrir kosningar Um leið og þeir ná völdum snýst dæmið við Þá læsa þeir klónum í fjölmiðla lánastofnanir og allt sem gefur þeim færi á að hlú að auðmönnum sem aftur styðja þá með fjárframlögum Þegar kjósendur átta sig á hvernig þeirra freslsi virkar hætta þeir að kjósa þá( vonandi)

  3. Reynir Sigurðsson 28. júní 2013 · á Facebook

    Það tekur því ekki aað vera að eiða orðum á Brynjar, þessi sjúkdómur sem hann og aðrir hægrimenn eru fæddir með, heitir greindarskortur, þannig að hann skylur ekki skoðanir annara

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.