Warning: foreach() argument must be of type array|object, null given in /home/u721286725/domains/skodun.is/public_html/wp-content/themes/Divi/includes/builder-5/server/Packages/Module/Options/Css/CssStyleUtils.php on line 196

Niðurstöður Þjóðfundar: Lykilsetningar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 07.11.2010

Vinsamlegast smellið á "Like" til að styðja framboð mitt:

Hér fyrir neðan má finna lykilsetningar sem lesnar voru upp á Þjóðfundinum. Ágætt innlegg fyrir komandi stjórnlagaþing. Fæ ekki betur séð en flest af því sem kom fram á Þjóðfundinum rími vel við stefnuskrá mína.


  • Réttlæti, velferð, jöfnuður


Allir eigi rétt á vinnu, framfærslu, ókeypis menntun, heilbrigðisþjónustu áháð búsetu, með einn lífeyrissjóð í landinu sem ekki skerði lífeyri sökum sparnaðar.


  • Friður & alþjóðastarf


Ísland stuðli að friði í heiminum og eigi gott alþjóðlegt samstarf þar sem mannréttindi, sjúkdómavarnir og fullveldi Íslands verði í heiðri höfð.


  • Lýðræði


Ísland er lýðræðisríki og eitt kjördæmi - þar sem er persónukjör. Stjórnarskráin sé endurskoðuð við breyttar aðstæður. Meirihlutakjörinn forseti hafi synjunarvald.


  • Náttúra Íslands, vernd, nýting


Náttúra og auðlindir landsins eru óframseljanleg þjóðareign sem ber að vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að aðgengi almennings sé tryggt.


  • Valddreifing


Við viljum þrískiptingu valdsins, valdameiri forseta og varaforseta, aðskilja ríki og kirkju, sjálfstæða dómstóla, jafnan atkvæðisrétt og eitt kjördæmi.


  • Náttúra Íslands, vernd og nýting


Náttúra Íslands og auðlindir hennar eru sameign þjóðarinnar og ber að vernda þær, jafna arði og aðgengi fyrir komandi kynslóðir.


  • Siðgæði


Alþingi hlíti niðurstöðu stjórnlagaþings, nýrrar siðanefndar fólksins og alþingismenn fái sömu eftirlaunakjör og almenningur, en að auki missi þeir rétt til endurkjörs brjóti þeir af sér.


  • Friður & alþjóðasamvinna


Sjálfstæð þjóð í herlausu landi sem stendur vörð um auðlindir sínar og er virk í alþjóðlegu samstarfi.


  • Mannréttindi


Stjórnarskrá tryggi að allir hafi jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu, náms og lágmarksframfærslu óháð búsetu - Mannréttindi skuli ávallt vera hornsteinn lýðveldisins.


  • Valddreifing, ábyrgð & gegnsæi


Tryggja sjálfstæði dómstóla, forseti hafi neitunarvald, störf alþingis gegnsæ, þrískipting valdsins algjör, ráðherrar eigi ekki sæti á alþingi. Sérfræðiþekking nýtt í ákvörðunartöku fyrir opnum tjöldum.


  • Lýðræði


Stjórnarskráin tryggir: -Að valdið sé þjóðarinnar -Rétt almennings til áhrifa -Virkni og endurnýjun þings án flokkahagsmuna


  • Siðgæði


Á Íslandi skal valdhöfum settur skýr rammi með siðareglum þar sem mannvirðing, ábyrgð og skyldur við þegna landsins er haft að leiðarfrelsi.


  • Land og þjóð


Ísland er sjálfstætt ríki þar sem býr samheldin þjóð með áherslu á manngildi, menningu og vernd þjóðarhagsmuna.


  • Réttlæti - Velferð - Jöfnuður


Tryggja skal öllum landsmönnum jafnrétti, réttlæti og mannsæmandi lífskjör. Áhersla skal lögð á menntun, velferð barna og jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu


  • Land og þjóð


Stjórnarskráin ávarpi þjóðina, mæli til um langtímastefnu - mörkun í þjóðmálum, tiltaki að auðlindir landsins séu sameign þjóðarinnar og að hún mismuni ekki trúarskoðunum landsmanna


  • Mannréttindi


Í stjórnarskrá Íslands skal vernda mannréttindi allra þegna óháð sérkennum einstaklinga. Áhersla skal lögð á réttindi minnihlutahópa, rétt allra til náms og einnig skal eignaréttur ætíð tryggður


  • Land og þjóð


Íslenska tungu eflum við, auðlindir verjum af mætti, kirkja og ríki með hvort sína hlið, kannski þjóðina sætti.


  • Réttlæti - Velferð - Jöfnuður


Að tryggja jafnrétti landsmanna með atvinnu, húsnæði, heilbrigðisþjónustu, menntun og velferð barna. Að landið verði eitt kjördæmi og að allir séu jafnir að lögum.

Sjá nánar:

Vinsamlegast smellið á "Like" til að styðja framboð mitt: