Hoppa í efni

Mannréttindafulltrúi andskotans*

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.01.2015

Mannréttindaflokkurinn Framsókn hefur nú skipað mann í Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar sem er einna þekktastur fyrir að berjast gegn mannréttindum. Ég óska Framsóknarflokknum til hamingju með að vera alveg búinn að missa það. Maðurinn er Gústaf Níelsson en hann:

a) Berst gegn réttindum samkynhneigðra og telur það „fráhvarf frá kristnum siðferðisgildum“ að laga réttarstöðu þeirra.

b) Berst gegn lögum um „ættleiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá konum í staðfestri samvist“

c) Vill að ákveðin trúarbrögð (Íslam) verði bönnuð á Íslandi og hefur sérstaklega lýst því yfir það sé „ekki heppilegt að fylla landið af múslimum“.

Í öllum tilfellum réttlætir Gústaf afstöðu sína með því að Ísland sé „kristin þjóð“ og sé síðasta „kristna vígið“ í Evrópu. Hann virðist á móti öllum lagabreytingum sem stangast á við „Heilaga ritningu“, en slík lög eru víst „fráhvarf frá skíru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni.“ Svo óttast þessi sami maður að tekin verði um sharia lög á Íslandi. Kannski ekki skrítið því ef hann fengi að ráða væru lög á Íslandi líklegast alfarið byggð á „Heilagri ritningu“.

Ríma þessi áhugamál Gústafs vel við kosningabaráttu Framsóknar fyrir síðustu kosningar þar sem meðal annars var alið upp á ótta gagnvart múslimum. Kosningabaráttu sem margir fulltrúar flokksins hafa afneitað og sagt vera byggða misskilningi.

Annars bíð ég spenntur eftir því að nýr varamaður í Mannréttindaráði Reykjavíkur kalli mig aftur „vænisjúkan“ og „huglausan aumingja“.

*Titill greinarinnar vísar í það að Gústaf kallar gagnrýnendur sína oft „Hýenur andskotans“.

Sjá nánar:

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (845) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.