Í gær fjallaði ég um öfgahægri fólk sem hótar því að brenna moskur á Íslandi. Meðal þeirra sem ég sá gagnrýna greinina fann ég engan sem sagði að það væri rangt að kveikja í moskum eða hóta því. Ekki einn!
Í staðinn komu meiri fordómar gagnvart múslimum og persónuárásir. Einn skrifaði:
„Þessi gæji er föðurlandssvikari og við skulum ekki gleyma honum þegar/ef við brettum í raun upp á ermarnar. Hann er óvinur okkar og vinur íslams. Ekki gleyma því.“
Persónuárásirnar læt ég liggja milli hluta. Hótanir eru þó ekki í lagi.
Þegar ég spurði beint hvort fólk styddi að kveikt yrði í moskum sagðist ein kona telja eðlilegt að moskan yrði „rifin og brend“ eftir að öllum múslimum hefði verið vísað úr landi.
Ég hefði haldið að það væri einfalt að lýsa því yfir að það sé rangt að hóta því að kveikja í moskum. En greinilega finnst mörgum það erfitt. Mögulega af því að þeir styðja hugmyndina.
Heimildir
- Fasistar hóta að kveikja í moskum — fyrri grein, 25. nóvember 2026
- Umræðan í hópnum „Ísland, þvert á flokka“, skoðuð 26. nóvember 2026
- Umræðan undir Facebook-færslu höfundar, skoðuð 26. nóvember 2026



