Baráttan fyrir betri heimi snýst, að mínu mati, fyrst og fremst um að skilja og bæta samfélagið en ekki um að dæma eða jafnvel „krossfesta“ einstaklinga sem hafa gert eitthvað slæmt.
Ástæðan er einföld. Allir gera mistök, allir geta lent í erfiðum aðstæðum og næstum allir geta framið eða stutt voðaverk undir „réttum“ kringumstæðum. Grunnþekking á sagnfræði og mannlegri hegðun ætti að gera okkur þetta ljóst.
Einstaka baráttufólk fyrir réttlæti virðist stundum gleyma því (eða ekki skilja) að umhverfi og aðstæður (samfélag, uppeldisaðstæður, líkamlegt og andlegt atgervi o.s.frv.) hafa gífurlega mikil áhrif á okkur sem einstaklinga. Þó einstaklingar séu yfirleitt ábyrgir gjörða sinna þá er ekki þar með sagt að það skili miklum árangri að fordæma einstaka menn og konur. Ég á því stundum erfitt með að skilja háværar kröfur sumra um myndbirtingar og afhjúpanir.
Menn eru hvorki góðir né vondir en þeir geta bæði framið góðverk og illvirki.
Gagnlegast er að reyna að skilja hvað það er í umhverfi okkar sem hefur áhrif á gjörðir mannsins og vinna út frá því.
Fordæming er fyrst og fremst fróun góðs fólks. Fólki líður yfirleitt betur með að geta litið niður á aðra einstaklinga. Það er þægilegt að vita (eða telja) að maður sé betri en einhver annar. Það er notalegt að standa á hærri siðferðisstalli en aðrir.
Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
Ég veit ekki til þess að neinn hafi lagt til krossfestingu. En það eru ekki mannréttindi að fá að vera skemmtikraftur á skólaböllum unglinga eða kennari í háskóla.
Greinarhöfundur athugar ekki að fordæming samfélagsins heyrist ekki hátt í kringum þá sem fremja voðaverk í augnabliksgeðsýki eða sökum vanþroska heldur beinist hún aðallega að þeim sem hafa sýnt einbeittan brotavilja sem fullorðnir og að heita vel þroskaðir einstaklingar. Hún er sérstaklega mikil kringum þá sem eru í háum stöðum og hafa nýtt sér stöðu sína sér í hag og fórnarlambinu í óhag, skiljanlega.
Takk.



